Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti fyrir 1. júní hefur verið birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. júní 2016 (nefndur eftir viku 26) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að styrkleikalistinn fyrir 1. apríl var birtur hafa þessi mót verið lesin inn í listann:

  • Íslandsmót eldri flokka 2. apríl
  • Aldursflokkamót BH 2. apríl
  • Grand Prix mót BH 3. apríl
  • Lokamót Grand Prix mótaraðar BTÍ 16. apríl
  • Lokamót aldursflokka mótaraðar BTÍ 16. apríl
  • Bikarkeppni BTÍ 17. apríl
  • Styrkleikamót Dímonar á sumardaginn fyrsta, 21. apríl
  • Héraðsmót HSK 6. maí
  • Leikir í 1. og 2. deild í apríl og maí, þ.m.t. úrslitakeppni
  • Leikur um áframhaldandi veru í 1. deild karla 11. maí
  • Arctic mótið 14.-16. maí, eingöngu innbyrðis leikir Íslendinga (þ.e. leikmanna með íslenska kennitölu)

Við þessa uppfærslu gerðist það helst markvert að Daði Freyr Guðmundsson, Víkingi, er kominn í efsta sæti á styrkleikalista karla. Þá er hinn efnilegi Ingi Darvis Rodriquez úr Víkingi kominn upp í meistaraflokk, en Ingi er 13 ára.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann telur ekki með leiki í deildarkeppninni.

Eftir á að sía frá flesta óvirka leikmenn nema stigahæstu óvirku karlana. Það verður gert á næstunni, og þá munu flestir virkir leikmenn hækka um sæti á listanum. Það verður gert þannig að eingöngu leikmenn sem hafa leikið frá upphafi árs 2013 verða eftir á listanum. Upphaf árs 2013 er jafnframt viðmiðið fyrir virka leikmenn vegna úthlutunar fulltrúa á ársþing BTÍ á þessu ári.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]) eða Hlöðver ([email protected]).

 

ÁMU (uppfært 24.7.)

Aðrar fréttir