Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Subway stigamót Víkings haldið 10. desember

Subway stigamótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 10. desember 2016.

Keppt verður í punktakeppni, og eldri flokki karla. Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki. Keppt verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður  í einföldum útslætti i öllum flokkum.

Dagskrá mótsins:

kl. 10:00  Eldri flokkur karla

kl. 10:30  1. flokkur karla og kvenna

kl. 12:00  2. flokkur karla og kvenna

kl. 13:00  Meistarafl. karla og kvenna

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000- í hvern flokk.

Dómari:  Árni Siemsen.

Mótsstjórn skipa:  Pétur Ó. Stephensen og Magnús F. Magnússon.

Dregið verður í mótið fimmtudaginn  8. desember kl. 18:00 Í TBR-Íþróttahúsinu.

Skráningar:  Pétur s-8940040/SMS og e.mail [email protected].

Síðasti skráningardagur er  fimmtudaginn 8. desember kl. 16:00.

Bréf um mótið: subway-stigamotid-2016

 

ÁMU

Aðrar fréttir