-
Thu04Jan2018
Sjá nánar í frétt frá 15.12.2017 og í reglugerð um flokkakeppni.
-
Sat06Jan2018Sun07Jan201811:00Íþróttamiðstöðin Hvolsvelli
Æfingabúðir í borðtennis fyrir stelpur verða haldnar á Hvolsvelli helgina 6.-7. janúar. Stúlkum úr öllum félögum býðst að taka þátt og er vonast eftir sem fjölbreyttustum æfingahópi. Dagskráin byggist aðallega á þremur æfingum og fjallgöngu, sem er nýr dagskrárliður í ár.
Ferðin verður lærdómsrík og skemmtileg verður lagt upp úr því að leikmenn æfi og kynnist leikmönnum frá öðrum félögum og skemmti sér með eigin æfingafélögum.Þá verður farið í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli, pizza borðuð og margt annað skemmtilegt.
Þjálfarar á svæðinu verða Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (þjálfari hjá KR), Tómas Ingi Shelton (þjálfari í BH) og Bergrún Linda Björgvinsdóttir (leikmaður Dímon sem þjálfar í KR). Einnig er von á góðum aðstoðarþjálfurum.
Gist verður í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, beint á móti íþróttahúsinu og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka.
Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.500 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef stelpurnar vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því.
Farið verður með strætó frá Mjódd á Hvolsvöll. Farið kostar 8 miða á Hvolsvöll og 8 miða til baka og hægt er að kaupa miðana í Mjódd frá kl. 10:00 daginn sem við förum. Strætómiðarnir eru ekki innifaldir í verðinu fyrir æfingabúðirnar. 20 miða spjald fyrir 6-11 ára kostar 1.300 kr. og sami fjöldi fyrir 12-17 ára kostar 3.000 kr.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Laugardagur:
11:00 Mæting í strætómiðstöðina í Mjódd
11:29 Strætó nr. 51 fer af stað
13:07 Strætó kemur á Hvolsvöll, stutt hádegishressing
13:30-15:00 1. æfing
15:00-17:00 Sund og hressing
17:00-18:30 2. æfing
19:00-20:00 Pizzuveisla (hlaðborð)
20:00-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir
22:30 Svefntími
Sunnudagur:
09:30 Morgunmatur
10:00-11:30 3. æfing
11:30-12:00 Hádegismatur
12:00-14:00 Gengið á Hvolsfjall í leiðsögn Bergrúnar
15:08 Brottför frá Hvolsvelli með strætó nr. 52
16:57 Strætó kemur í Mjódd
Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Auði á netfangið [email protected] og skráningarfrestur er 4. janúar 2017. Ef búðirnar skyldu fyllast gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði.
-
Sat13Jan201812:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Upplýsingar eru í meðfylgjandi skjali:
-
Sun14Jan201813:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Upplýsingar eru í meðfylgjandi skjali:
-
Sat20Jan201811:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Fjórða leikhelgin (7. og 8. umferð) í Raflandsdeild karla og kvenna fer fram laugardaginn 20. janúar nk.
Umferðirnar fara fram í aðstöðu borðtennisdeildar BH í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Umsjón hefur borðtennisdeild BH. Allar viðureignir (6 samtals í karla og kvenna) verða spilaðar á sama tíma. Leikjum verður ekki flýtt í Raflandsdeildinni.
Tímaáætlun fyrir Raflandsdeild karla og kvenna laugardaginn 20. janúar 2018:
7. umferð, raflandsdeild karla kl. 11:00
Víkingur B - Víkingur C
BH A -HK A
Víkingur A - KR A
7. umferð raflandsdeild kvenna kl. 11:00
Víkingur - KR C
KR A - KR B
KR D - KR E
8. umferð raflandsdeild karla kl. 13:30
Víkingur A - Víkingur C
KR A - BH A
HK A - Víkingur B
8. umferð raflandsdeild kvenna kl. 13:30
KR E- KR C
KR B - KR D
Víkingur - KR A
-
Sun21Jan201813:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Síðustu umferðirnar í A riðli 2. deildar karla fara fram sunnudaginn 21. janúar nk. Síðustu umferðarinar í B riðli 2. deildar karla fara fram helgina 17. og 18. febrúar nk. hjá Víkingum í TBR húsinu.
Umferðirnar fara fram í aðstöðu borðtennisdeildar BH í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Umsjón hefur borðtennisdeild BH. Allar viðureignir verða spilaðar á sama tíma. Leikjum verður ekki flýtt í Raflandsdeildinni.
Tímaáætlun fyrir 2. deild karla A riðill sunnudaginn 21. janúar 2018
7. og 8. umferð kl. 13.00
KR B - BH B
Víkingur D - KR D
9. og 10. umferð kl. 15:00
KR D - BH B
KR B - Víkingur E
-
Sat27Jan2018Sun28Jan201811:00Íþróttamiðstöðin Hvolsvelli
Æfingabúðir í borðtennis fyrir stráka verða haldnar á Hvolsvelli helgina 27.-28. janúar. Strákum úr öllum félögum býðst að taka þátt og er vonast eftir sem fjölbreyttustum æfingahópi. Æfingabúðirnar eru einungis ætlaðar strákum, 15 ára og yngri, sem hafa æft að minnsta kosti í 1 ár.
Ferðin verður lærdómsrík og skemmtileg verður lagt upp úr því að leikmenn æfi og kynnist leikmönnum frá öðrum félögum og skemmti sér með eigin æfingafélögum. Þá verður farið í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli,pizza borðuð og margt annað skemmtilegt.
Þjálfarar á svæðinu verða Breki Þórðarson (þjálfari í KR), Skúli Gunnarsson (þjálfari í KR) og Tómas Ingi Shelton (þjálfari í BH).
Gist verður í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, beint á móti íþróttahúsinu og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka.
Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.500 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef strákarnir vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því.
Farið verður með strætó frá Mjódd á Hvolsvöll. Farið kostar 8 miða á Hvolsvöll og 8 miða til baka og hægt er að kaupa miðana í Mjódd frá kl. 10:00 daginn sem við förum. Strætómiðarnir eru ekki innifaldir í verðinu fyrir æfingabúðirnar. 20 miða spjald fyrir 6-11 ára kostar 1.300 kr. og sami fjöldi fyrir 12-17 ára kostar 3.000 kr.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Laugardagur:
11:00 Mæting í strætómiðstöðina í Mjódd
11:29 Strætó nr. 51 fer af stað
13:07 Strætó kemur á Hvolsvöll, stutt hádegishressing
13:30-15:00 1. æfing
15:00-17:00 Sund og hressing
17:00-18:30 2. æfing
19:00-20:00 Pizzuveisla (hlaðborð)
20:00-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir
22:30 Svefntími
Sunnudagur:
09:30 Morgunmatur
10:00-11:30 3. æfing
11:30-12:00 Hádegismatur
12:00-14:00 Lokamót
15:08 Brottför frá Hvolsvelli með strætó nr. 52
16:57 Strætó kemur í Mjódd
Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Tómasi á netfangið [email protected]
og skráningarfrestur er 26. janúar 2017. Ef búðirnar skyldu fyllast gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði. Annars ekki hika við að hafa samband við Tómas þjálfara ef það eru einhverjar spurningar.
-
Sat27Jan201815:00TBR-húsið
Borðtenniskeppni leikanna 2018 hefst kl. 15 laugardaginn 27. janúar, þegar keppni í karlaflokki hefst. Keppni í kvennaflokki hefst kl. 16. Mótið er boðsmót.
Plakat um mótið:
-
Sat03Feb201813:00Íþróttahús Hagaskóla
Borðtennisdeild KR heldur Grand Prix mót laugardaginn 3. febrúar næstkomandi í Íþróttahúsi Hagaskóla í samstarfi við Kelduna. Keppt verður í opnum flokki karla og kvenna. Einnig verður leikið í B-keppni fyrir þá sem tapa í fyrstu umferð, svo allir keppendur fá a.m.k. tvo leiki.
Keppni hefst klukkan 13:00, húsið opnar klukkan 12:00.
Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í karla- og kvennaflokki.
Mótið er hluti af Grand Prix mótaröð BTÍ þar sem átta stigahæstu leikmenn mótaraðarinnar leika á lokamóti Grand Prix. Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður með hvítum 3ja stjörnu plastkúlum.Mótsgjald er 1500 kr.
Skráning fer fram á vef Tournament software. http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=280534D0-9F68-46C4-BA8F-07A4FB3BDD63. Skráningar skulu berast fyrir kl. 22:00 miðvikudaginn 31. janúar. Dregið verður 1. febrúar klukkan 18:00 í Íþróttahúsi Hagaskóla og verður drátturinn gerður opinber á vef Tournament software eftir að dregið hefur verið.Yfirdómari verður Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir.
Í mótanefnd sitja Hlöðver Steini Hlöðversson, Kári Mímisson og Magnús Stefánsson.
Öllum nánari spurningum er beint til mótstjóra, Kára Mímissonar ([email protected]).
Plakat um mótið: grandprix
-
Sun04Feb201810:00Íþróttahús Hagaskóla
Borðtennisdeild KR heldur aldursflokkamót sunnudaginn 4. febrúar næstkomandi í Íþróttahúsi Hagaskóla. Mótið er hluti af aldursflokkamótaröð BTÍ þar sem átta stigahæstu leikmenn í hverjum flokki komast á lokamót BTÍ.
Dagskrá:
10:00 einliðaleikur hnokka f. 2007 og síðar
10:00 einliðaleikur pilta f. 2005-2006
11:00 einliðaleikur táta f. 2007 og síðar
11:00 einliðaleikur telpna f. 2005-2006
12:00 einliðaleikur sveina f. 2003-2004
12:00 einliðaleikur meyja f. 2003-2004
13:00 einliðaleikur drengja f. 2000-2002
13:00 einliðaleikur stúlkna f. 2000-2002Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki. Mótsstjórn áskilur sér rétt til að sameina flokka ef færri en fjórir eru skráðir í flokkinn en samt sem áður verða veitt verðlaun fyrir hvern flokk fyrir sig.
Mótsgjald er 1000 kr.
Skráning fer fram á vef Tournament Software, http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=EDE56185-E90B-4D6A-9F83-0E96366D21A7. Skráningar skulu berast fyrir klukkan 22:00 miðvikudaginn 31. janúar. Dregið verður 1. febrúar klukkan 18:00 í Íþróttahúsi Hagaskóla og verður drátturinn gerður opinber eftir að dregið hefur verið.Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður með hvítum 3ja stjörnu plastkúlum.
Yfirdómari er Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.
Í mótanefnd sitja Hlöðver Steini Hlöðversson, Kári Mímisson og Magnús Stefánsson.
Öllum nánari spurningum er beint til mótstjóra, Kára Mímissonar ([email protected]).
Plakat um mótið: aldursflokkamot
-
Sat10Feb201813:00Íþróttahús Hagaskóla
Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2018 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla helgina 10.-11. febrúar 2018. Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:
- Piltar og telpur fædd 2005 og síðar (13 ára og yngri)
- Sveinar og meyjar fædd 2003-2004 (14-15 ára)
- Drengir og stúlkur fædd 2000-2002 (16-18 ára)
Dagskrá
Laugardagur 10. febrúar
13.00 Drengir fæddir 2000-2002
13.00 Sveinar fæddir 2003-2004
Skráning og þátttökugjöld
Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.000 á lið. Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 7. febrúar kl. 20.00. Skráningum skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=49C83D4B-C831-4DD4-B6E8-2C5C0F2CB0A0 ) eða í tölvupósti til mótsstjórnar en þar skal koma fram í hvaða flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir og hvaða leikmenn skipa liðin.
Bréf um mótið: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 2018
-
Sun11Feb201810:00Íþróttahús Hagaskóla
Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2018 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla helgina 10.-11. febrúar 2018. Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:
- Piltar og telpur fædd 2005 og síðar (13 ára og yngri)
- Sveinar og meyjar fædd 2003-2004 (14-15 ára)
- Drengir og stúlkur fædd 2000-2002 (16-18 ára)
Dagskrá
Sunnudagur 11. febrúar
10.00 Piltar fæddir 2005 og síðar
10.00 Telpur fæddar 2005 og síðar
13.00 Meyjar fæddar 2003-2004
13.00 Stúlkur fæddar 2000-2002
Skráning og þátttökugjöld
Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.000 á lið. Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 7. febrúar kl. 20.00. Skráningum skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=49C83D4B-C831-4DD4-B6E8-2C5C0F2CB0A0 ) eða í tölvupósti til mótsstjórnar en þar skal koma fram í hvaða flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir og hvaða leikmenn skipa liðin.
Skila þarf kennitölu allra keppenda í síðasta lagi á mótsdag!
Bréf um mótið: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 2018
-
Sat17Feb201810:00TBR-húsið
Síðustu leikirnir í B-riðli 2. deildar fara fram þessa helgi en A-riðill lauk keppni 21. janúar.
2. deild karla B-riðill
kl. 10:00 5. umferð 2. deild karla
Akur - KR E
HK B - KR C
kl. 12:00 6. umferð 2. deild karla
HK B - KR E
KR C - Akur
-
Sat17Feb201810:00TBR-húsið
Síðustu tvær umferðirnar í Raflandsdeildinni fara fram í TBR-húsinu laugardaginn 17. febrúar.
Tímaáætlun:
kl 10:00 9. umferð í 1. deild karla og kvenna.
1. deild karla
KR - Víkingur C
HK - Víkingur A
Víkingur B - BH1. deild kvenna
KR B - KR C
Víkingur - KR E
KR A - KR Dkl. 12:00 10. umferð í 1. deild karla og kvenna.
1. deild karla
HK - Víkingur C
Víkingur B - KR
BH - Víkingur A1. deild kvenna
10. umferð
KR A - KR C
KR D - Víkingur
KR E - KR BUndanúrslit hefjast strax í vikunni á eftir, en lið nr. 1 og 4 mætast annars vegar og lið nr. 2 og 3 hins vegar 19., 21. og 23. febrúar.
-
Mon19Feb201819:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Fyrsti leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
Tímasetning væntanleg fljótlega.
-
Wed21Feb201820:00Íþróttahús Hagaskóla
Annar leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Fri23Feb2018Sun25Feb2018Riga, Lettland
Til stendur að senda leikmenn úr unglingalandsliðinu í kadett (f. 2003 og síðar) og minikadett (f. 2006 og síðar) flokkum.
Sjá nánar í frétt frá 12.2.2018.
-
Sat24Feb201813:00TBR-húsið
Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 24. febrúar 2018 kl. 13:00.
Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.
Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina.
Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:
Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi. Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði. Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi. Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.
Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:
- Einliðaleikur karla A – X
- Einliðaleikur karla B-Y
- Einliðaleikur kvenna
- Tvíliðaleikur karla
- Tvenndarkeppni
- Einliðaleikur karla A-Y
- Einliðaleikur karla B-XÞar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð. Tapi lið leiknum er það úr leik. Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.Þátttökugjaldið í mótið er kr. 5.000 á lið. Yfirdómari: Árni Siemsen.
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 22. febrúar kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 22. febrúar kl. 16:00.
Bréf um mótið: Bikarkeppni félaga 2018
-
Mon26Feb201820:00TBR-húsið
Fyrsti leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Wed28Feb201820:00Íþróttahús Snælandsskóla
Annar leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Sat03Mar201811:00TBR-húsið
ÍSLANDSMÓTIÐ í borðtennis fer fram í TBR - Íþróttahúsinu við Gnoðar-vog helgina 3.–4. mars 2018. Mótið hefst á laugardeginum kl.11 og lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 15:00 á sunnudeginum.
Leikið verður í eftirtöldum flokkum:
- Tvenndarkeppni, tvíliðaleik karla og kvenna og
- í einliðaleik í meistaraflokki, 1. og 2. flokki karla og kvenna.
Dagskrá laugardaginn 3. mars:
- 11:00 Tvenndarkeppni – úrslitaleikur kl. 12:30
- 12:00 Tvíliðaleikur karla, leikið fram að undanúrslitum
- 13:00 Tvíliðaleikur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
- 14:00 Meistaraflokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
- 14:00 Meistaraflokkur karla, leikið fram að undanúrslitum
- 15:00 1. flokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
- 15:00 1. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum
- 16:00 2. flokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
- 16:00 2. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum
Leikinn verður einfaldur útsláttur 3-5 lotur í öllum flokkum nema í meistaraflokki karla og kvenna, þar verða leiknar 4-7 lotur.
Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ og reglugerð um Íslandsmót. Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin. Skráningargjald er kr.1.500 í einstaklingskeppnina og kr. 3.000 fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni.
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 28. febrúar kl 18:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða síma 8940040 fyrir þann tíma.
Dregið verður á skrifstofu BTÍ sama dag kl. 20:00.
Yfirdómari: Árni Siemsen.
Mótshaldari: Borðtennisdeild Víkings.
Bréf um mótið: ÍSLANDSMÓTIÐ 3-4 mars 2018
Plakat um mótið: Íslandsmótið 2018 plakat 1
-
Sun04Mar201811:30TBR-húsið
ÍSLANDSMÓTIÐ í borðtennis fer fram í TBR - Íþróttahúsinu við Gnoðar-vog helgina 3.–4. mars 2018. Mótið hefst á laugardeginum kl.11 og lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 15:00 á sunnudeginum.
Leikið verður í eftirtöldum flokkum:
- Tvenndarkeppni, tvíliðaleik karla og kvenna og
- í einliðaleik í meistaraflokki, 1. og 2. flokki karla og kvenna.
Dagskrá sunnudaginn 4. mars:
- 11:30 Undanúrslit í 1. og 2. flokki karla og kvenna
- 12:00 Úrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og kvenna
- 12:30 Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna
- 13:00 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna
- 13:30 Undanúrslit í meistaraflokki karla og kvenna
- 14:30 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna
- 15:00 Verðlaunaafhending
Leikinn verður einfaldur útsláttur 3-5 lotur í öllum flokkum nema í meistaraflokki karla og kvenna, þar verða leiknar 4-7 lotur.
Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ og reglugerð um Íslandsmót. Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin. Skráningargjald er kr.1.500 í einstaklingskeppnina og kr. 3.000 fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni.
Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 28. febrúar kl 18:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða síma 8940040 fyrir þann tíma.
Dregið verður á skrifstofu BTÍ sama dag kl. 20:00.
Yfirdómari: Árni Siemsen.
Mótshaldari: Borðtennisdeild Víkings.
Bréf um mótið: ÍSLANDSMÓTIÐ 3-4 mars 2018
Plakat um mótið: Íslandsmótið 2018 plakat 1
-
Mon05Mar201820:00TBR-húsið
Fyrsti leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Mon05Mar201820:00Íþróttahús Hagaskóla
Fyrsti leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Wed07Mar201820:00Íþróttahús Hagaskóla
Annar leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Wed07Mar201820:00Íþróttahús Hagaskóla
Annar leikur af tveimur eða þremur, þar sem liðið í 1. sæti leikur við liðið í 4. sæti og liðið í 2. sæti leikur við liðið í 3. sæti. Það lið fer í úrslit sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Sat10Mar201810:00Íþróttahús ÍFR Hátúni 14, Reykjavík
Styrkleikamót ÍFR fer fram í Íþróttahúsi ÍFR Hátúni 14 laugardaginn 10. mars 2018. Leikið verður í 2. flokki karla og kvenna.
Keppni hefst kl 10.00 í 2. flokki karla og klukkan 14.30 í 2. flokki kvenna.
Leikið verður í riðlakeppni þar sem 2 efstu komast áfram í útsláttarfyrirkomulag. Vinna þarf 3 lotur. Leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.
Eignabikar fyrir fyrsta sætið í báðum flokkum. Verðlaun verða veitt fyrir 4 efstu sætin. Þátttökugjald er krónur 1.000,-.
Yfirdómari: Helgi Þór Gunnarsson.
Mótanefnd: Kristján Jónasson s: 862-9155 Helgi Þór Gunnarsson s: 858-2050.
Dregið verður í mótið miðvikudaginn 7.mars kl 20.00 og því verða skráningar að berst eigi síðar er kl 16.00 miðvikudaginn 7. mars. Tekið er á móti skráningum á [email protected] og hjá mótanefnd. Kennitala verður að fylgja skráningum svo þær teljist gildar.
Hér er að finna auglýsingu um mótið (plakat) sem hægt er að prenta út. :ifr mot 2018
-
Mon12Mar201820:00TBR-húsið
Fyrsti leikur af tveimur eða þremur. Það lið verður Íslandsmeistari sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Wed14Mar201819:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Annar leikur af tveimur eða þremur. Það lið verður Íslandsmeistari sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Fri16Mar201819:00TBR-húsið
Oddaleikur á milli Víkings-A og BH-A. Það lið verður Íslandsmeistari í Raflandsdeild karla sem vinnur þennan leik.
-
Sat17Mar201813:00Íþróttahús Hagaskóla
Íslandsmót öldunga í borðtennis 2018 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla, Neshaga 3, laugardaginn 17. mars 2018. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.
Leikið verður í fjórum aldursflokkum karla og kvenna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik og einum aldursflokki í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.
Dagskrá
13.00 Tvenndarkeppni 40 ára og eldri, fædd 1978 og fyrr
14.00 Tvíliðaleikur karla 40-49 ára, fæddir 1969-1978
14.00 Tvíliðaleikur kvenna 40-49 ára, fæddar 1969-1978
14.00 Tvíliðaleikur karla 50-59 ára, fæddir 1959-1968
14.00 Tvíliðaleikur kvenna 50-59 ára, fæddar 1959-1968
14.00 Tvíliðaleikur karla 60-69 ára, fæddir 1949-1958
14.00 Tvíliðaleikur kvenna 60-69 ára, fæddar 1949-1958
14.00 Tvíliðaleikur karla 70 ára og eldri, fæddir 1948 og fyrr
14.00 Tvíliðaleikur kvenna 70 ára og eldri, fæddar 1948 og fyrr
15.00 Einliðaleikur karla 40-49 ára, fæddir 1969-1978
15.00 Einliðaleikur kvenna 40-49 ára, fæddar 1969-1978
15.00 Einliðaleikur karla 50-59 ára, fæddir 1959-1968
15.00 Einliðaleikur kvenna 50-59 ára, fæddar 1959-1968
15.00 Einliðaleikur karla 60-69 ára, fæddir 1949-1958
15.00 Einliðaleikur kvenna 60-69 ára, fæddar 1949-1958
15.00 Einliðaleikur karla 70 ára og eldri, fæddir 1948 og fyrr
15.00 Einliðaleikur kvenna 70 ára og eldri, fæddar 1948 og fyrr
Verðlaunaafhending verður að loknum úrslitaleikjum.
Fyrirkomulag keppni
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti skv. reglugerð um Íslandsmót. Þó verður leikið í riðli ef þrjú pör eru skráð til leiks skv. sömu reglugerð. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik.
Skv. reglugerð um Íslandsmót er lágmarksþátttaka í hverjum aldursflokki tveir í einliðaleik og tvö pör í tvíliðaleik og tvenndarleik. Þeir flokkar sem ekki uppfylla þessi skilyrði falla niður og keppendur flytjast í næsta aldursflokk fyrir neðan. Ekki er veittur Íslandsmeistaratitill í flokki sem fellur niður með þessum hætti.
Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Leikið verður með hvítum þriggja stjörnu Stiga kúlum.
Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjöld og skráning
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 14. mars kl. 22.
Mælst er til þess að skráningum sé skilað á vef Tournament Software á slóðinni http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=A5682FF4-EACD-4E67-8551-EDD7383EE25F . Leiðbeiningar um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ, www.bordtennis.is. Einnig má skila skráningu á netfangið bordtennisdeil[email protected] eða hringja/senda sms á
mótsstjórn.Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.
Samkvæmt reglugerð er þátttaka á Íslandsmótum aðeins heimil íslenskum ríkisborgurum og erlendum ríkisborgururum sem hafa verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram.
Þátttökugjald er 2.000 kr. í einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr. á mann). Hægt er að greiða þátttökugjald inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/par er verið að greiða. Einnig er hægt að greiða á staðnum en ekki verður posi á mótsstað.
Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 15. mars kl. 20:00.
Mótstjórn
Aldís Rún Lárusdóttir, gsm. 665 6330, [email protected]
Hlöðver Steini Hlöðversson, gsm. 824 3738, [email protected]
Kári Mímisson, gsm. 84907071, [email protected]
Yfirdómari: Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.
Annað
Að móti loknu er fyrirhugað að hittast á Kaffi Vest á Hofsvallagötu.
Bréf um mótið: Íslandsmót öldunga í borðtennis 2018
-
Mon19Mar201820:00Íþróttahús Hagaskóla
Fyrsti leikur af tveimur eða þremur. Það lið verður Íslandsmeistari sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Wed21Mar201819:00TBR-húsið
Annar leikur af tveimur eða þremur. Það lið verður Íslandsmeistari sem fyrr vinnur tvo leiki.
-
Sat24Mar201811:00TBR-húsið
Grand Prix mót Coca Cola fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 24. mars 2018 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings. Keppt verður í opnum flokkum karla og kvenna. Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti.
Leikið með 3ja stjörnu plast kúlum.
Leikið verður einnig í B - keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í opnum flokki karla og kvenna.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1500-
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjóri: Pétur Ó. Stephensen
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 24. mars:
kl. 11:00 Opinn flokkur karla
kl. 11:30 Opinn flokkur kvenna
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 22. mars klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected]
Var fyrst sett inn á mótaskrá 29. okt. 2017 en frestað til 24. mars.
Bréf um mótið: Grand prix Coca Cola 24 mars 2018
-
Sun25Mar201811:00TBR-húsið
Aldursflokkamót borðtennisdeildar Víkings verður haldið sunnudaginn 25. mars 2018. Keppt er í einföldum úrslætti Þrjár lotur þarf að vinna til að vinna leik. Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti.
Leikið verður með 3ja stjörnu plast kúlum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000-
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjóri: Pétur Ó. Stephensen
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Sunnudagur 25. mars:
kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka og táta f. 2007 og síðar
kl. 11:00 Einliðaleikur pilta og telpna f. 2005-2006
kl. 12:00 Einliðaleikur sveina og stúlknaf. 2003 – 2004
kl. 12:00 Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 2000-2002
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 22. mars klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected]
Var fyrst sett inn á mótaskrá 29. okt. 2017 en var þá flutt til 24. mars.
Bréf um mótið: Unglingamót Víkings 25. mars 2018
-
Sat07Apr201814:00Glerárskóli, Akureyri
Húsið opnar kl. 13 en keppni hefst kl. 14.
Liðin sem leika í úrslitakeppninni eru KR-B og Víkingur-D úr A-riðli og Akur og HK-B úr B-riðli.
Leikirnir í undanúrslitum eru:
KR-B - Akur
HK-B - Víkingur-D
Síðan leika sigurliðin til úrslita. Liðið sem sigrar leikur í 1. deild á næsta ári en liðið í 2. sæti leikur við liðið í 5. sæti 1. deildar (Víking-B) um sæti í 1. deild á næsta ári.
-
Sat14Apr2018Sun15Apr201810:00Hrafnagil í Eyjafirði
Mótstjórnin fyrir norðan hefur gefið út þær upplýsingar að keppni hefjist kl. 10 á laugardegi (tvenndarleikur og yngstu strákarnir) og flokkarnir hefjist svo koll af kolli, eftir aldursröð.
Tvenndarleikurinn verður kláraður á laugardegi en undanúrslit í einliða- og tvíliðaleik geymd þar til á sunnudeginum, eins og venjan er. Undanúrslitin ættu flest að hefjast um tíu og ellefuleytið á sunnudeginum og keppni svo að klárast ca. kl. 14.
Nákvæmar tímasetningar á hvern flokk verða birtar þegar Samherjar verða komnir með nákvæmar þátttökutölur í hverjum flokki (þ.e. í næstu viku (uppfært 5.4.)).
Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 12. apríl kl. 12.00.
Fyrirhugað er að mótshaldarar bjóði upp á gistingu í skólastofum á mótinu og hægt verður að mæta á staðinn upp úr klukkan 17 á föstudeginum.
Einnig verður boðið upp á að kaupa fæði þessa daga, bæði morgunmat, hádegismat og kvöldmat, sjá meðfylgjandi bréf. Engin verslun er á staðnum og engin eldunaraðstaða.
Nánari upplýsingar um mótið voru birtar í frétt á forsíðu vefsins þann 8. apríl.
Bréf um mótið: auglysing islandsmot unglinga 2018 endanlegt
-
Thu19Apr201811:00Íþróttamiðstöðin Hvolsvelli
Punktamót Dímonar verður haldið á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2018 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Keppt verður í 2. flokki karla og kvenna.
Mótið hefst kl. 11.00 og er skráningargjald kr. 800,- á þátttakanda.
- 2.flokkur karla Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20
- 2.flokkur kvenna Keppni hefst kl. 11:00 og lýkur kl. 14:20
Vinningar fyrir efsta sætið í hvorum flokki eru eftirfarandi:
- Gjafabréf frá Lárusi Á. Bragasyni í Miðhúsum uppá klst hestaferð um Njáluslóðir
- Gjafabréf frá söluskálanum Björkin uppá 16´ pizzu og gos.
- 10 miða sundkort í sundlaugina á Hvolsvelli
Síðasti skráningardagur er þriðjudaginn 17. apríl kl. 20:00 og skal skráningum skilað á netfangið [email protected].
Leikið verður með hvítum STIGA*** kúlum á STIGA ELITE borðum.
Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.Yfirdómari verður Ólafur Elí Magnússon.
Mótstjórn: Ásta Laufey Sigurðardóttir, Guðmann Ó. Magnússon, Reynir Björgvinsson.Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags
Bréf um mótið: Punktamót Dímonar 2018
-
Sat21Apr201813:00Íþróttamiðstöðin, Laugardal
Ársþing Borðtennissambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 21. apríl 2018 kl.13:00, sbr. 5. gr. laga sambandsins.
Kjörbréf verða send út í byrjun apríl.
Frestur til að skila inn breytingatillögum á lögum og reglugerðum er 21 dögum fyrir þingið (þ.e. 31. mars). Breytingatillögur skulu sendar á [email protected] Ekki verður tekið við breytingatillögum eftir þann tíma. BTÍ mun senda breytingatillögur og dagskrá út til kynningar tveimur vikum fyrir þing.
-
Sun22Apr201810:00TBR-húsið
Mótið átti upphaflega að vera 29. apríl en var flýtt til 22. apríl þar sem TBR-húsið var upptekið 29. apríl.
Dagskrá mótsins:
Sunnudagur 22. Apríl kl: 10:00 - Drengir 11 ára og yngri
„ „ „ kl: 10:00 - Stúlkur 11 ára og yngri
„ „ „ kl: 10:30 - Drengir 12-13 ára
„ „ „ kl: 10:30 - Stúlkur 12-13 ára
„ „ „ kl: 11:00 - Drengir 14-15 ára
„ „ „ kl. 11:00 - Stúlkur 14-15 ára
„ kl. 11:30 - Drengir 16-18 ára
„ „ „ kl. 11:30 - Stúlkur 16-18 ára
Keppnisfyrirkomulag er þannig að keppt verður með úrsláttarfyrirkomulagi, þó þannig að keppt verður um hvert sæti, sbr. reglugerð um aldursflokkamótaröðina.
Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum. Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki
Bréf um mótið: Lokamót aldursflokkamótaraðarinnar 2018
-
Sun22Apr201813:00TBR-húsið
Mótið átti upphaflega að vera 28. apríl en var flýtt til 22. apríl þar sem TBR-húsið var upptekið 28. apríl.
Dagskrá mótsins:
Kl. 13:00 8 manna úrslit karla og kvenna
Kl. 13:30 Undanúrslit karla og kvenna
Kl. 14:00 Úrslitaleikur karla og kvenna
Bréf um mótið: Lokamót Grand Prix 2018
-
Wed25Apr201819:30Íþróttahús Snælandsskóla
Aukaleikur á milli liðsins í 5. sæti í 1. deild karla (Víkings-B) og liðsins í 2. sæti í 2. deild karla (KR-B) um sæti í 1. deild karla á næsta keppnistímabili, fer fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla miðvikudaginn 25. apríl kl. 19.30.
Liðið sem sigrar í leiknum leikur í 1. deild karla á næsta keppnistímabili en liðið sem tapar leikur í 2. deild.
-
Sun29Apr2018Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Borðtennisdeild BH heldur afreksæfingabúðir sunnudaginn 29. apríl í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. BH-ingar hafa boðið þeim leikmönnum, sem náðu góðum árangri á aldursflokkamóti BH í janúar, þátttöku í æfingabúðunum.
-
Sun29Apr2018Sun06May2018Halmstad, Svíþjóð
Ísland náði ekki að vinna sér inn þátttökurétt á mótinu að þessu sinni.
Hægt verður að fylgjast með leikjum á mótinu á vef ITTF, sjá https://www.ittf.com/2018-wttc-tv/
-
Fri04May2018
-
Fri18May2018Sun20May2018Nuuk, Grænlandi
Arctic mótið verður haldið í Nuuk á Grænlandi þetta árið.
Sjá nánar á fréttasíðu.
-
Mon21May2018Tue22May2018Nuuk, Grænland
Íslenska landsliðsfólkið, sem keppir á Arctic mótinu á Grænlandi, tekur þátt í æfingabúðum í Nuuk í framhaldi af mótinu.
-
Fri25May2018Sun27May2018Haapsalu, Eistlandi
Ísland sendir karlalið á Norður-Evrópumót fullorðinna.
Mótið fer fram í Haapsalu í Eistlandi, skv. vef ETTU en ekki í Litháen, eins og áður hafði verið skráð.
Vefsíða mótsins á vef eistneska borðtennissambandsins er http://www.lauatennis.ee/web/node/1703.
-
Mon11Jun2018Sat16Jun2018Íþróttahúsið við Strandgötu í HafnarfirðiBorðtennissamband Íslands heldur ITTF 1. stig þjálfaranámskeið á Íslandi 11-16. júní nk.Leiðbeinandi verður Aleksey Yefremov en hann er frá Minsk, Hvíta Rússlandi og núverandi yfirþjálfari hjá norska unglingalandsliðinu og landsliðinu. Aleksey útskrifaðist frá Ríkisíþróttaháskólanum í Hvíta Rússlandi og fyrrverandi landsliðsmaður þar.Hér er ágætis umfjöllun um Aleksey: http://bordtennis.no/aleksey-
yefremov-ansatt-som- landslagstrener/ Dagskrá námskeiðsins má sjá í frétt á forsíðu vefsins dagsetta 30.5.2018. -
Tue26Jun2018Thu28Jun2018Haapsalu, Eistlandi
Unglingalandsliðið verður sent á þetta mót. Í frétt frá 31.5.2018 má sjá hvaða keppendur keppa fyrir Íslands hönd á mótinu.
Vefsíða mótsins hjá eistneska borðtennissambandinu er http://www.lauatennis.ee/web/node/1705.
-
Sun15Jul2018Tue24Jul2018Cluj Napoca, Rúmeníu
Drengjalið (16-18 ára) verður sent á mótið frá Íslandi.
Dregið hefur verið i riðla og má sjá dráttinn á vef ETTU, http://www.ettu.org/en/events/european-youth-championships/draws--amp--results/. Ísland leikur í G-riðli með Ísrael, Moldóvu og Serbíu.
-
Fri31Aug2018
Skilafrestur á að halda mót vetrarins á þeim dagsetningum sem fram koma í drögum, sem send voru til formanna félaga og styrkleikamót á öðrum dagsetningum er 31. ágúst nk.
-
Mon10Sep2018
Stjórn BTÍ boðar formenn félaga á fund þar sem rædd verða ýmis mál vegna komandi keppnistímabils.
-
Sat15Sep2018
Síðasti skráningarfrestur til að skila inn leikmannalistum í liðakeppni 1. deildar karla og kvenna og 2. deild karla er 15. september nk.
Kostnaður á hvert lið í 1. Deild 12.000,- og í 2. deild 12.000,-.
Vakin er athygli á að greiðsla þarf að hafa borist BTÍ fyrir 1. umferðina fer fram ellegar getur liðið ekki tekið þátt. -
Tue18Sep2018Sun23Sep2018Alicante, Spáni
Tveir keppendur verða sendir á mótið frá Íslandi, Magnús Gauti Úlfarsson og Magnús Jóhann Hjartarson.
Hægt er að fylgjast með mótinu á slóðinni http://ettc2018.com/#.
-
Sat29Sep201813:30Íþróttahús Hagaskóla
Fyrsta leikjahelgi keppnistímabilsins í 1. deild karla og kvenna og 2. deild karla verður í Íþróttahúsi Hagaskóla 29.-30. september.
Keppni laugardaginn 29. september hefst kl. 13.30. Leiknar verða tvær umferðir í 1. deild kvenna og í A-riðli 2. deildar karla. Seinni umferðin hefst kl. 15.30.
Sjá má lista yfir liðin sem mætast á hægri spássíu síðunnar.
-
Sun30Sep201811:00Íþróttahús Hagaskóla
Fyrsta leikjahelgi keppnistímabilsins í 1. deild karla og kvenna og 2. deild karla verður í Íþróttahúsi Hagaskóla 29.-30. september.
Keppni sunnudaginn 30. september hefst kl. 11.00. Leiknar verða tvær umferðir í 1. deild karla og í B-riðli 2. deildar karla. Seinni umferðin hefst kl. 13.30.
Sjá má lista yfir liðin sem mætast á hægri spássíu síðunnar.
-
Fri05Oct2018Sun07Oct2018Íþróttahús Hagaskóla
Dagana 5.-7. október nk. koma til Íslands 12 færeyskir strákar og stelpur á aldrinum 12-16 ára (flest í kringum 13-14 ára) og verða í æfingabúðum með íslenskum iðkendum á sama reki.
Hvert félag innan BTÍ sendir 3 leikmenn á búðirnar, sbr. tölvupóst til formanna.
Í lok búðanna eða á sunnudeginum verður haldið opið mót í íþróttahúsi Hagaskóla þar sem þáttakendur taka þátt. Verður fyrirkomulagið þannig að keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum:
Kl. 10:30
- Opinn flokkur tvíliðaleikur drengir (fæddir 2001 og síðar)
- Opinn flokkur tvíliðaleikur stúlkur (fæddar 2001 og síðar)
Kl. 12:00
- Einliðaleikur minicadet stelpur (fæddar 2006 og síðar)
- Einliðaleikur cadet stelpur (fæddar 2004-2005)
- Einliðaleikur junior stelpur (fæddar 2001-2003)
- Einliðaleikur cadet drengir (fæddir 2004-2005)
Spilað verður í riðlum og með hefðbundnum útslætti eftir riðla. Leikið verður með þriggja stjörnu kúlum. Yfirdómari er Hannes Þ. Guðrúnarson.
Mótið er opið fyrir alla þá sem vilja taka þátt í ofangreindum aldursflokkum. Sérstaklega er bent á að mini cadet strákar geta keppt upp fyrir sig ef þeir vilja í cadet flokki drengja. Þátttökugjald er kr. 600,- á mann sem greiðist á mótsstað.
Skráningar berist til [email protected]í síðasta lagi á laugardag kl. 18:00.
-
Sat13Oct201813:30Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar, Hrafnagili, Eyjafirði
Önnur leikjahelgi keppnistímabilsins í 1. deild kvenna og 2. deild karla verður í umsjón Umf. Samherja.
Þriðja og fjórða umferð í Raflandsdeild kvenna og 2. deild karla verður í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar þann 13. október 2018.Tímaáætlun verður sem hér segir:
Kl. 13.30 3. umferð í A og B riðli 2. deildar karla
Kl. 15.30 3. umferð í 1. deild kvenna og í 4. umferð í B riðli 2. deildar karla
Kl. 17.30 4. umferð í 1. deild kvenna og A riðli 2. deildar karlaAllar viðureignir verða leiknar á einu borði og seinni viðureignirnar verða ekki settar á stað fyrr en á auglýstum tíma, skv. tilmælum frá BTÍ.
-
Sat20Oct2018Kópavogur
Annar leikdagur keppnistímabilsins í 1. deild karla verður í umsjón HK, og verður ekki sömu helgi og keppt verður í 1. deild kvenna og 2. deild karla.
Nánari tímasetning sett inn þegar nær dregur.
-
Sat27Oct201811:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Borðtennisdeild BH kynnir
OPNA HAFNARFJARÐARMEISTARAMÓT KVENNA
VELKOMIN Á NÆSTA STIG
auglýsingu á pdf sniði er að finna hér
Opna Hafnarfjarðarmeistaramót kvenna mun fara fram Laugardaginn 27. október 2018 í stóra salnum í Íþróttahúsinu við Standgötu, Strandgötu 53, Hafnarfirði
DAGSKRÁ OG FYRIRKOMULAG
Keppni hefst kl. 11.00 en húsið opnar 10.00. Keppt verður í opnum flokki kvenna. Keppnisfyrirkomulag verður deildakeppni þar sem keppendum er skipt í þriggja manna deildir eftir styrkleikalista BTÍ. Eftir að allir hafa keppt við alla í sömu deild færist neðsti maður niður um deild og efsti maður upp um deild. Leiknar verða fjórar umferðir svo hver leikmaður fær átta leiki yfir daginn.
Sigurvegari mótsins er sú sem sigrar í efstu deild í síðustu umferðinni. Veitt verða verðlaun fyrir öll sætin í efstu deild og efstu sætin í öðrum deildum.
Markmiðið með mótinu er að halda vandað mót fyrir konur á öllum aldri þar sem þær fá marga leiki við aðra leikmenn á sama getustigi. Mótið er ætlað börnum, unglingum og fullorðnum.
Skráningar sendist til [email protected] Skráningarfrestur er til föstudagsins 26. október kl.16.00.
Þátttökugjöld: 1.500 krónur á mann keppanda og verður það notað í verðlaun og til greiðslu fyrir dómgæslu. Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning
Borðtennisdeildar BH: Kt.: 620709-0180 og Reikningsnr. 0544-26-16207. Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected]
Yfirdómari er Pétur Marteinn Urbancic Tómasson. Mótsstjórn skipa Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, Tómas Ingi Shelton, Ingimar Ingimarsson og Haukur Hauksson
-
Sun28Oct201811:00Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
Sunnudagur 28. október 2018 verða unglingalandsliðsæfingar sem fram fara í aðstöðu BH í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
kl. 11:00 Cadet og Junior kvk
kl. 14:00 Cadet og Junior kkTómas Shelton unglingalandsliðsþjálfari hefur valið leikmenn til æfinganna, sbr. frétt á fréttasíðu. Mini cadet leikmenn taka þátt í æfingum með Cadet og Junior.
-
Sat03Nov201813:00TBR-húsið
Bikarkeppni félaga í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 3. nóvember 2018 kl. 13:00.
Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings.
Leikið verður samkvæmt reglugerð BTÍ um keppnina.
Fyrirkomulag keppni er eftirfarandi:
Í lið þarf að lágmarki 2 karla og 1 konu. Þar sem um bikarkeppni félaga er að ræða skulu allir leikmennirnir vera í sama félagi. Hver leikmaður má aðeins leika í einu liði. Leikið er með úrsláttarfyrirkomulagi. Það lið sigrar sem fyrr hlýtur 4 vinninga og lýkur þá leik.
Leiknir eru 7 leikir í þessari röð:
- Einliðaleikur karla A – X
- Einliðaleikur karla B-Y
- Einliðaleikur kvenna
- Tvíliðaleikur karla
- Tvenndarkeppni
- Einliðaleikur karla A-Y
- Einliðaleikur karla B-X
Þar sem um bikarkeppni er að ræða eru lið dregin úr einum potti fyrir hverja umferð. Tapi lið leiknum er það úr leik. Leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin og bikarmeistararnir fá farandbikar til varðveislu í eitt ár.
Þátttökugjaldið í mótið er kr. 5.000 á lið. Yfirdómari: Árni Siemsen.
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 1. nóvember kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 1. nóvember kl. 16:00.
Auglýsinguna má sjá hér: Bikarkeppni 2018
-
Sun04Nov201810:00Íþróttahús Hagaskóla
Borðtennisdeild KR heldur styrkleikamót sunnudaginn 4. nóvember 2018 í Íþróttahúsi Hagaskóla við Neshaga 3 (miðinngangur). Keppni hefst kl. 10.00.
3.11.2018: Tímaáætlun í kvennaflokki var breytt í samráði við skráða keppendur. Endurskoðuð tímaáætlun fyrir mótið:
Dagskrá:
10:00 2. flokkur karla
13:00 Sameiginleg keppni í meistaraflokki og 1. flokki karla
14:00 Sameiginleg keppni í 1. flokki og 2. flokki kvennaDrátturinn í mótið hefur verið birtur á vef Tournament software, sjá http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=E195C47B-E3FB-4312-8025-B058140C02EB
Eldri póstur hér fyrir neðan:
Keppnisflokkar:
10:00 2. flokkur karla
11:00 2. flokkur kvenna
13:00 1. flokkur karla
13:00 Meistaraflokkur karla
15:00 1. flokkur kvenna
15:00 Meistaraflokkur kvennaEingöngu er hægt að skrá sig til keppni í einum flokki.
Fyrirkomulag keppni
Leikið um hvert sæti í flokki ef keppendur eru fleiri en 6. Ef 6 eða færri eru skráðir í flokk verður þó spilað í einum riðli. Ef færri en fjórir eru skráðir í 1. flokk eða meistaraflokk verður leikið saman í meistaraflokki og 1. flokki.
Leikmönnum verður raðað eftir styrkleikastigum þannig að stigahæsti leikmaðurinn leikur við þann stigalægsta í fyrstu umferð, sá næst stigahæsti við þann næst stigalægsta o.s.frv.
Þess vegna verður ekki hægt að bæta við leikmönnum eftir að dregið hefur verið í mótið!
Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik í öllum flokkum. Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður á Stiga Expert og Butterfly Centrefold 25 borðum með hvítum Stiga 3ja stjörnu plastkúlum. Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjald: 1.500 krónur ef greitt er á keppnisstað. Ef þátttökugjald er greitt við skráningu eða í síðasta lagi 1. nóvember kl. 20 er veittur afsláttur og er þátttökugjaldið þá 1.000 krónur. Gjaldið greiðist inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR og skal skrifað í athugasemd fyrir hvaða leikmann er verið að greiða en einnig senda tölvupóst með nafni og kennitölu þáttakanda sem greitt er fyrir á netfangið [email protected].
Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129.
Skráning fer fram á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=E195C47B-E3FB-4312-8025-B058140C02EB ) til kl. 20 fimmtudaginn 1. nóvember 2018. Setja skal kennitölu sem „Member ID“. Ef ekki gengur að skrá sig á vef Tournament Software má senda skráningu til mótsstjórnar fyrir kl. 20 fimmtudaginn 1. nóvember 2018. Á vef BTÍ (www.bordtennis.is) eru leiðbeiningar um stofnun reiknings og skráningu á Tournament Software. Þeir, sem hafa áður stofnað reikning til að skrá sig á mót geta notað hann aftur.
Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ!
Dregið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla föstudaginn 2. nóvember klukkan 17:00. Eftir að dregið hefur verið í mótið verður ekki bætt við keppendum, nema að um sannanleg mistök mótsstjórnar sé að ræða. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software.
Bréf um mótið: Styrkleikamót KR í borðtennis 4.11. 2018
-
Sat10Nov201811:00Íþróttahúsið Fagrilundur, Furugrund 83, 200 Kópavogur
Grand Prix mót HK fer fram í íþróttamiðstöðinni Fagralundi laugardaginn 10.
nóvember næstkomandi. Leikið verður í opnum flokki karla og kvenna. Leikinn er
einfaldur útsláttur, fjórar lotur unnar. Einnig verður B-keppni fyrir þá keppendur sem
detta út í 1. umferð.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 10. nóv kl. 11:00: Opinn flokkur kvenna
Laugardagur 10. nóv kl. 12:00: Opinn flokkur karla
Þátttökugjald í mótið er kr.1000-
Hægt er að greiða keppnisgjöld inná reikning 536-26-5337 kt. 6309810269, 1.000 kr.
Muna að setja kennitölu keppanda í skýringu með greiðslu.
Yfirdómari: Bjarni Þ. Bjarnason
Mótanefnd:
Brynjólfur Þórisson
Magnús Bollason
Kristján R. HjartarsonSíðasti skráningardagur er 9. nóv kl. 18:00. Dregið verður í íþróttahúsi Snælandsskóla 9.
nóv. kl 18:30. Skráning fer fram á https://tournamentsoftware.com. Ef það gengur ekki
þá er hægt að skrá hér: goo.gl/forms/6FNZW0wIkK
Leikið verður með 3ja stjörnu kúlum
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 4 sætin.Bréf um mótið: Grand Prix HK_2018
-
Sun11Nov201811:00Íþróttamiðstöðin Hvolsvelli
Aldursflokkamót Dímonar, sem er aldursflokkamót í mótaröð BTÍ verður haldið sunnudaginn 11. nóvember 2018 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli og hefst kl.11:00.
Dagskrá mótsins:
- 11:00 Einliðaleikur hnokkar f. 2008 og yngri
- 11:00 Einliðaleikur tátur f. 2008 og yngri
- 11:15 Einliðaleikur piltar f. 2006 -2007
- 11:15 Einliðaleikur telpur f . 2006 -2007
- 11:45 Einliðaleikur sveinar f. 2004-2005
- 11:45 Einliðaleikur meyjar f. 2004-2005
- 11:45 Einliðaleikur drengja f. 2001-2003
- 11:45 Einliðaleikur stúlkna f. 2001-2003
Skráningargjald er kr. 800,- á þátttakanda.
Kennitölur þurfa að fylgja skráningum.
Síðasti skráningardagur er föstudaginn 9. nóvember kl. 21:00 og skal skráningum skilað til [email protected]
Leikið verður með hvítum *** STIGA optimum kúlum á STIGA borðum.
Leiknar verða 3 -5 lotur eftir riðlafyrirkomulagi þar sem 2 efstu komast áfram, eftir það verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ.
Yfirdómari verður Ólafur Elí Magnússon.
Mótstjórn óskar eftir að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Keppni hefst kl. 11:00 að staðartíma á Hvolsvelli.
Verðlaun eru veitt fyrir fjögur efstu sæti í öllum flokkum. Verðlaunaafhending verður strax að loknu móti. Aðeins er hægt að leika í einum aldursflokki.
Mótstjórn:
- Guðmann Óskar Magnússon
- Ragnhildur Á Guðmundsdóttir
- Reynir Björgvinsson
Bréf um mótið: Aldursflokkamót Dímonar 2018 haust
-
Sat17Nov201810:00Hrafnagil, Eyjafjörður
Ungmennafélagið Samherjar munu vera með æfingabúðir 17. nóvember nk. Athugið að aldursflokkamótið, sem átti að vera sunnudaginn 18. nóvember verður ekki haldið þann dag heldur eftir áramót (tilkynnt 12. nóvember).
Mynd er h.v. komin á fyrirkomulag æfingabúðanna á laugardeginum 17. nóvember. Yfirumsjón með æfingabúðunum mun hafa Bjarni Þ Bjarnason þjálfari HK en hann hefur síðastliðin misseri verið í námi í borðtennisþjálfarafræðum við háskólann í Split í Króatíu. Um er að ræða námsbraut sem komið var á laggirnar af Evrópska borðtennissambandinu (ETTU). Gefst þeim leikmönnum og þjálfurum sem þátt taka í æfingabúðunum þarna tækifæri til að nema það sem Bjarni hefur lært.
Auglýsingu um æfingabúðirnar er að finna í hlekk hér og dagskrá æfingabúðanna er aðgengileg hér og einnig í texta hér að neðan.
Æfingabúðir í Hrafnagili laugardaginn 17. nóvember 2018
10:00-12:00 Æfing
12:00-13:00 Matarhlé
13:30-15:30 Æfing
15:30-16:30 Æfing
16:30-18:30 Æfing
18:30 Matur
19:00-20:00 Þjálfaraspjall
Sjá nánar í frétt frá 28.10.
-
Thu22Nov201817:30 og 19:30Íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
A-landsliðsæfingar fimmtudaginn 22. nóvember í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði
kl. 17:30-19:30: konur
kl. 19:30-21:30: karlar
-
Fri23Nov2018
-
Sat24Nov201809:00TBR-húsið
Þriðja leikjahelgi í deildakeppninni er í umsjón Borðtennisdeildar Víkings og verður leikið í TBR-húsinu laugardaginn 24. nóvember.
Keppt verður í Raflandsdeildinni kl. 9.00 og kl. 11.00.
Raflandsdeildin
1. deild karla.
5. umferð kl. 09:00:
KR B – HK B kl. 09:00 leikið á 2 borðum
KR A – BH kl. 09:00 leikið á 2 borðum
HK A – Víkingur kl. 09:00 leikið á 2 borðum
6. umferð kl. 11:00:
KR B– KR A kl. 11:00 leikið á 2 borðum
HK A– HK B kl. 11:00 leikið á 2 borðum
Víkingur – BH kl. 11:00 leikið á 2 borðum
1. deild kvenna.
5. umferð 09:00:
KR C – Víkingur kl. 09:00 leikið á 1 borði
KR B – BH kl. 09:00 leikið á 1 borði
Samherjar – KR A kl. 09:00 leikið á 1 borði
6. umferð kl. 11:00:
KR B – KR A kl. 11:00 leikið á 1 borði
KR C– BH kl. 11:00 leikið á 1 borði
Samherjar –Víkingur kl. 11:00 leikið á 1 borði
Ath. Hægt er að hefja leik í 6. umferð fyrr en tímataflan gefur til kynna ef lið hafa lokið leik 5. umferðar.
Bréf með dagskránni:
Raflandsdeildin: 1 deild karla og kvenna 2018-2019-5 og 6 umferðir.
-
Sat24Nov201812:30TBR-húsið
Þriðja leikjahelgi í 2. deild karla verður í TBR-húsinu laugardaginn 24. nóvember.
Keppt verður í 2. deild kl. 12.30 og 14.00.
2. deild
2. deild karla – A riðill.
5. umferð kl. 12:30:
Akur A – KR C kl. 12:30 leikið á 2 borðum
BH B – HK C kl. 12:30 leikið á 2 borðum
6. umferð kl. 14:00:
Víkingur C – BH B kl. 14:00 leikið á 2 borðum
KR C– HK C kl. 14:00 leikið á 2 borðum
2. deild karla – B. riðill.
5.umferð 12:30:
BH C – Samherjar kl. 12:30 leikið á 2 borðum
ÍFR –KR D kl. 12:30 leikið á 2 borðum
6. umferð kl. 14:00:
Víkingur B – ÍFR kl. 14:00 leikið á 2 borðum
Samherjar– KR D kl. 14:00 leikið á 2 borðum
Ath. Hægt er að hefja leik í 6. umferð fyrr en tímataflan gefur til kynna ef lið hafa lokið leik 5. umferðar.
Bréf með dagskránni:
2. deild: 2 deild karla 2018-2019-5 og 6 umferðir.
-
Sun25Nov20189:00 og 16:00TBR-húsið
A-landsliðsæfingar sunnudaginn 25. nóvember í TBR-húsinu.
09:00-11:00 karlar og konur
16:00-18:00 karlar og konur
-
Wed05Dec2018Sun09Dec2018
Kjör borðtennisfólks ársins fer fram rafrænt í ár í fyrsta skipti og lýkur á miðnætti 9. desember.
Sjá nánar í frétt frá 5. desember.
Viðburði bætt við 9. desember.
-
Sat08Dec201812:00TBR-húsið
Grand Prix mót Pepsi fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 8. desember í umsjá Borðtennisdeildar Víkings. Keppt verður í opnum flokkum karla og kvenna. Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar.
Leikið verður einnig í B - keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í opnum flokki karla og kvenna.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000.
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjóri: Pétur Ó. Stephensen
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 8. des:
kl. 12:00 Opinn flokkur karla
kl. 12:30 Opinn flokkur kvenna
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 6. desember klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected]
Bréf um mótið: Grand prix Pepsi 8. des 2018
-
Sun09Dec201811:00TBR-húsið
Aldursflokkamót borðtennisdeildar Víkings verður haldið sunnudaginn 9. desember 2018. Keppt verður í riðlum. Raðað verður í töflu samkvæmt nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti.
Leikið verður með 3ja stjörnu plastkúlum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000.
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjóri: Pétur Ó. Stephensen
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka og táta f. 2008 og síðar
kl. 11:00 Einliðaleikur pilta og telpna f. 2006 – 2007
kl. 12:00 Einliðaleikur sveina og meyja f. 2004 – 2005
kl. 12:00 Einliðaleikur drengja og stúlkna f. 2001 – 2003
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 6. desember klukkan 17:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/ [email protected]
Bréf um mótið: Unglingamót Víkings 9 des 2018