Adidas mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 29. október 2016.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með hvítum Stiga 3ja stjörnu kúlum.
Dagskrá mótsins laugardaginn 29. okt:
kl. 10:00 Eldri flokkur karla
kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
kl. 12:30 2. flokkur karla og kvenna
kl. 14:00 Meistarafl. karla og kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000- í hvern flokk.
Yfirdómarar: Árni Siemsen og Pétur Ó. Stephensen.
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Magnús Finnur Magnússon, Daði Freyr Guðmundsson.
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 27. okt kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]. og sms skeyti.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 27. október kl. 17:00.