Borðtennisdeild KR heldur Grand Prix mót og mót í U21 árs flokki laugardaginn 5. október 2019 í Íþróttahúsi Hagaskóla við Neshaga 3 (miðinngangur). Keppni hefst kl. 13.00.
Keppnisflokkar í Grand Prix mótinu:
- 13:00 Opinn flokkur karla
- 13:30 Opinn flokkur kvenna
Átta efstu keppendurnir í mótinu fá stig í Grand Prix mótaröð Borðtennissambands Íslands.
Keppnisflokkar U21 árs mótinu:
- 15:00 U21 árs flokkur karla (fæddir 1999 og síðar)
- 15:30 U21 árs flokkur kvenna (fæddar 1999 og síðar)
Fyrirkomulag keppni
Leikið er með einföldum útslætti bæði á Grand Prix mótinu og í U21 árs mótinu og þarf fjórar unnar lotur til að vinna leik. Leikið verður í B-keppni fyrir þá sem tapa fyrsta leik. Raðað verður í töflu samkvæmt keppnisreglum eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður á Stiga expert borðum með hvítum 3ja stjörnu plastkúlum. Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hvorum flokki en í B-keppni eru aðeins veitt verðlaun fyrir sigur.
Þátttökugjald: Í Grand Prix mótið er gjaldið 1.500 kr. Í U21 árs mótið er gjaldið 1.000 kr. Hægt er að greiða keppnisgjaldið á keppnisstað í reiðufé eða með millifærslu á bankareikning Borðtennisdeildar KR og skal skrifað í athugasemd fyrir hvaða leikmann er verið að greiða. Ef er greitt fyrirfram skal senda tölvupóst með nafni og kennitölu þáttakanda sem greitt er fyrir á netfangið [email protected]. Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129.
Skráning fer fram á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com) til kl. 22 miðvikudaginn 2. október 2019. Setja skal kennitölu sem „Member ID“. Ef ekki gengur að skrá sig á vef Tournament Software má senda skráningu til mótsstjórnar fyrir kl. 22 miðvikudaginn 2. október. Á vef BTÍ (www.bordtennis.is) eru leiðbeiningar um stofnun reiknings og skráningu á Tournament Software. Þeir, sem hafa áður stofnað reikning til að skrá sig á mót geta notað hann aftur.
Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ!
Dregið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 3. október klukkan 19:00. Eftir að dregið hefur verið í mótið verður ekki bætt við keppendum, nema að um sannanleg mistök mótsstjórnar sé að ræða. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software.
Mótstjórn:
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Guðrún Gestsdóttir, gsm. 896 4849, [email protected]ail.com
Magnús Stefánsson, gsm. 865 3884, [email protected]
Yfirdómari: Hannes Guðrúnarson
Bréf um mótið: GP-mót-KR-í-borðtennis-5.10.-2019