Borðtennisdeild KR hefur umsjón með síðustu leikjahelginni í deildakeppninni í borðtennis á þessu keppnistímabili, fyrir úrslitakeppnina. Leikið verður í Íþróttahúsi Hagaskóla 2.-3. febrúar og verður tímaáætlun sem hér segir:
Laugardagur 2. febrúar
Kl. 13.30 9. umferð í 1. deild karla og kvenna, Raflandsdeildinni
Kl. 16.00 10. umferð í 1. deild karla og kvenna, Raflandsdeildinni
Yfirdómari verður Hannes Guðrúnarson, alþjóðadómari
Allar viðureignir verða leiknar á einu borði og seinni viðureignirnar verða ekki settar af stað fyrr en á auglýstum tíma, skv. tilmælum frá BTÍ.
Að lokinni keppni laugardaginn 2. febrúar verður verðlaunaafhending fyrir Raflandsdeildina.