Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2018 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla helgina 10.-11. febrúar 2018. Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:
- Piltar og telpur fædd 2005 og síðar (13 ára og yngri)
- Sveinar og meyjar fædd 2003-2004 (14-15 ára)
- Drengir og stúlkur fædd 2000-2002 (16-18 ára)
Dagskrá
Sunnudagur 11. febrúar
10.00 Piltar fæddir 2005 og síðar
10.00 Telpur fæddar 2005 og síðar
13.00 Meyjar fæddar 2003-2004
13.00 Stúlkur fæddar 2000-2002
Skráning og þátttökugjöld
Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.000 á lið. Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 7. febrúar kl. 20.00. Skráningum skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=49C83D4B-C831-4DD4-B6E8-2C5C0F2CB0A0 ) eða í tölvupósti til mótsstjórnar en þar skal koma fram í hvaða flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir og hvaða leikmenn skipa liðin.
Skila þarf kennitölu allra keppenda í síðasta lagi á mótsdag!
Bréf um mótið: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 2018