Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2017 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla helgina 11.-12. febrúar 2017. Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.
Dagskrá: laugardagur 11. febrúar
13.30 Drengir fæddir 1999-2001
13.30 Stúlkur fæddar 1999-2001
16.00 Sveinar fæddir 2002-2003
16.00 Meyjar fæddar 2002-2003
Skráning og þátttökugjöld
Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 2.500 á lið. Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 8. febrúar kl. 20.00. Skráningum skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=3E2DE109-B9AC-4A45-8135-5BBD8189B274 ) eða í tölvupósti til mótsstjórnar en þar skal koma fram í hvaða flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir.
Skila þarf kennitölu allra keppenda í síðasta lagi á mótsdag!
Bréf um mótið: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 2017