Íslandsmót unglinga í borðtennis 2019 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 30.-31. mars 2019. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.
Leikið verður í fjórum aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik og þremur aldursflokkum í tvíliðaleik og tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.
Laugardaginn 30. mars verður leikið til úrslita í tvenndarkeppni og keppt í riðlum í einliðaleik. Leikið verður upp úr riðlum fram að undanúrslitum.
Sunnudaginn 31. mars verður leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik.
Dagskrá lýkur með sameiginlegri verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka.
Fyrirhugað er að veitingar verði seldar á staðnum.
Dagskrá
Laugardagur 30. mars
Tvenndarkeppni til úrslita:
11.00 Tvenndarkeppni 13 ára og yngri, fædd 2006 og síðar
11.00 Tvenndarkeppni 14-15 ára, fædd 2004-2005
11.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 2001-2003
Einliðaleikur að undanúrslitum:
11.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2008 og síðar
11.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2008 og síðar
12.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2006-2007
13.00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2006-2007
14.00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2004-2005
14.00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2004-2005
15.30 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2001-2003
16.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2001-2003
Samkoma:
19.30 Sundferð fyrir áhugasama í Vesturbæjarlaug (aðgangur ekki innifalinn)
Sunnudagur 31. mars
Tvíliðaleikur:
11.00 Tvíliðaleikur pilta -13 ára, fæddir 2006 og síðar
11.00 Tvíliðaleikur telpna -13 ára, fæddar 2006 og síðar
11.00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2001-2003
12.00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2001-2003
12.00 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2004-2005
12.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2004-2005
Einliðaleikur undanúrslit og úrslit:
13.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2008 og síðar
13.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2008 og síðar
13.30 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2006-2007
14.15 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2006-2007
14.15 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2004-2005
14.15 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2004-2005
15.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2001-2003
15.00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2001-2003
Verðlaunaafhending í öllum flokkum verður sunnudaginn 31. mars að loknum úrslitaleikjum
Fyrirkomulag keppni
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti nema ef þrjú pör eru skráð til leiks, þá er keppti í riðli, skv. reglugerð um Íslandsmót. Ef eingöngu tveir keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram sunnudaginn 31. mars. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik.
Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Leikið verður á Butterfly borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum.
Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjöld og skráning
Þátttökugjald er 3.000 kr. í einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr. á mann). Allir keppendur fá bol frá BTÍ til eignar.
Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 26. mars kl. 20.
Skráningum skal skilað til mótstjórnar með skráningu á vef Tournament Software á slóðinni http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=638962A6-3A5B-4F6F-A83F-20BDA8B34AFD. Leiðbeiningar um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ, www.bordtennis.is. Ef ekki gengur að skrá þátttöku á vefnum má skila skráningu beint til mótsstjórnar.
Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.
Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla miðvikudaginn 27. mars kl. 20:00.
Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður
að vera í félagi innan BTÍ.
Mótstjórn
Aldís Rún Lárusdóttir, gsm. 665 6330, [email protected]
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Guðrún Gestsdóttir, gsm. 896 48 49 [email protected]
Bréf um mótið: Íslandsmót unglinga í borðtennis 2019