Garpsmótið 26. apríl (breytt dagsetning)
Fyrsta borðtennismót Borðtennisdeildar Garps fram í íþróttahúsi Laugalandsskóla í Holtum laugardaginn 26. apríl nk. Athugið breytt dagsetning var áður auglýst á sunnudegi.
Auk hefðbundnu unglingaflokkanna U11 og U13 verður keppt í U9 flokki og opnum flokkum karla og kvenna. Lágmarksfjöldi þátttakenda í flokki er 2.
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og fara efstu tveir leikmenn úr hverjum riðli og keppa í einföldum útslætti (ef fleiri en einn riðill er í flokki). Raðað verður í riðla samkvæmt styrkleikalista, sbr. 17. gr. keppnisreglna BTÍ. Mótið gildir til stiga á styrkleikalistanum. Leikmaður þarf að vinna 3 lotur til að vinna viðureignina, bæði í riðlunum og í útsláttarkeppninni.
Dagskrá:
- U9 strákar kl. 10:00 (fæddir 2016 og síðar)
- U9 stelpur kl. 10:00 (fæddar 2016 og síðar)
- U11 stelpur kl. 10:30 (fæddar 2014 og síðar)
- U11 strákar kl. 11:00 (fæddir 2014 og síðar)
- U13 stelpur kl. 12:00 (fæddar 2012 og síðar)
- U13 strákar kl. 12:30 (fæddir 2012 og síðar)
- U15 stelpur kl. 13:00 (fæddar 2010 og síðar)
- U15 strákar kl. 13:30 (fæddir 2010 og síðar)
- Opinn flokkur karla kl. 14:30
- Opinn flokkur kvenna kl. 14:30
Berist margar skráningar munu U13, U15 og opnu flokkarnir hugsanlega hefjast aðeins síðar um daginn og verður það auglýst hér í fréttinni strax að drætti loknum.
Leikið verður með hvítum Stiga 3 stjörnu kúlum á sex keppnisborðum og verða medalíur veittar fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.
Mótsstjórn skipa Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (s: 868-6873), Rubén Illera Lopez Bæring og Jón Breiðfjörð Guðmundsson (s: 694-6586) og verður Auður yfirdómari.
Dregið verður í mótið í Laugalandsskóla fimmtudaginn 25. apríl nk. kl. 19:00 en skráningarfrestur er til miðvikudagsins 24. apríl kl. 21:00. Skráningar skulu berast á bæði netföngin [email protected] og [email protected] og skal taka fram fullt nafn leikmanns, kennitölu, félag og keppnisflokk, en einungis er heimilt að keppa í einum flokki.
Þátttökugjald er 1.500 kr. Þátttökugjald er 1.500 krónur og greiðist með millifærslu eða reiðufé á mótstað.