Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót unglinga fer fram 22.-23. mars 2025

Íslandsmót unglinga í borðtennis 2025 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 22.-23. mars 2025. Mótið er í umsjón Borðtennissambands Íslands í samvinnu við Borðtennisdeild KR.

Leikið verður í fjórum aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik og þremur aldursflokkum í tvíliðaleik og tvenndarkeppni sbr. reglugerð BTÍ um Íslandsmót.

Laugardaginn 22. mars 2025, verður leikið í tvenndarkeppni og leikið fram að undanúrslitum í einliðaleik. Sunnudaginn 23. mars verður leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik.

Gert er ráð fyrir að keppni hefjist klukkan 10 báða daga en endanleg tímaáætlun verður gefin út þegar skráningu er lokið.

Dagskrá lýkur með sameiginlegri verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka á sunnudegi.

Fyrirhugað er að veitingar verði seldar á staðnum.

Dagskrá

Laugardagur 22. mars
ENDANLEG TÍMAÁÆTLUN LAUGARDAGS verður gefin út þegar skráningu er lokið.

Setning mótsins.
Tvenndarkeppni:
Kl. 11:00 Tvenndarkeppni 13 ára og yngri, fædd 2012 og síðar.
Kl. 11:00 Tvenndarkeppni 14-15 ára, fædd 2010-2011.
Kl. 10:00 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 2007-2009.
Einliðaleikur fram að undanúrslitum:
Kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka 11 ára og yngri, fæddir 2014 og síðar.
Kl. 11:00 Einliðaleikur táta 11 ára og yngri, fæddar 2014 og síðar.
Kl. 12:00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2012-2013.
Kl. 12:00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2012-2013.
Kl. 13:00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2010-2011.
Kl. 13:00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2010-2011.
Kl. 14:00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2007-2009.
Kl. 14:00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2007-2009.

Sunnudagur 23. mars
ENDANLEG TÍMAÁÆTLUN SUNNUDAGS verður gefin út þegar skráningu er lokið.

Tvíliðaleikur:
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur pilta 13 ára og yngri, fæddir 2012 og síðar.
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur telpna 13 ára og yngri, fæddar 2012 og síðar.
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur sveina14-15 ára, fæddir 2010-2011.
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2010-2011.
Kl. 11:00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2007-2009.
Kl. 11:00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2007-2009.
Einliðaleikur – undanúrslit og úrslit:
Kl 13:00 Einliðaleikur hnokka 11 ára og yngri, fæddir 2014 og síðar.
Kl. 13:00 Einliðaleikur táta 11 ára og yngri, fæddar 2014 og síðar.
Kl. 13:00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2012-2013.
Kl. 13:00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2012-2013.
Kl. 14:00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2010-2011.
Kl. 14:00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2010-2011.
Kl. 14:00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2007-2009.
Kl. 14:00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2007-2009.

Verðlaunaafhending í öllum flokkum verður sunnudaginn 23. mars að loknum úrslitaleikjum.

Fyrirkomulag keppni
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti nema ef þrjú pör eru skráð til leiks, þá er keppt í riðli, skv. reglugerð um Íslandsmót. Ef eingöngu tveir keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram sunnudaginn 23. mars. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður á Butterfly borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum. Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum nema í einliðaleik 11 ára og yngri, þar sem allir keppendur fá þátttökuverðlaun.

Þátttökugjöld og skráning
Þátttökugjald er 3.500 kr. í einliðaleik og 3.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.500 kr. á mann). Allir keppendur fá bol frá BTÍ til eignar. Við skráningu er valin óskastærð af bol en ekki er hægt að tryggja keppendum óskastærð nema skráning berist í síðasta lagi 13.mars.

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 18. mars 2025 kl. 21.

Skráning og greiðsla keppnisgjalda fer fram í gegnum nýtt skráningar- og greiðslukerfi BTÍ.

Keppnisgjöld verða ekki endurgreidd eftir að dregið hefur verið í mótið.

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla miðvikudaginn 19. mars kl. 21:00.

Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ.+

Mótstjórn
Hlöðver S. Hlöðversson, gsm. 824-3738, [email protected]
Óskar Agnarsson, gsm. 697-4576, [email protected]
Aldís Rún Lárusdóttir, gsm. 665-6330, [email protected]

Auglýsing: Íslandsmót unglinga

Aðrar fréttir