Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

KR bikarmeistari 2025

Bikarkeppnin 2025 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu 27. apríl í umsjón borðtennisdeildar Víkings

Sjö lið lið kepptu um bikarmeistaratitilinn:

Vikingur: Nevena, Daði, Magnús H, og Benedikt J.
KR: Þórunn Erla, Viktor og Pétur
KR: Guðbjörg Vala, Ellert og Pétur G.
BH: Sól, Þorbergur, Jóhannes
KR: Helena, Norbert og Eiríkur
KR: Marta Dögg, Lúkas og Hlöðver
KR: Aldís, Karl og Luca De Ganaro

Um hörkuleiki og skemmtilega keppni var um að ræða þar sem keppendur sýndu mjög flotta borðtennistakta.

Í undanúrslitum sigraði lið BH lið Víkings 4 – 2 og KR liðið (Guðbjörg Vala, Pétur G og Ellert) sigruðu KR liðið (Aldís, Karl og Luca) 4 – 0.

Úrslitaleikinn léku því lið KR (Guðbjörg Vala, Ellert og Pétur G) gegn liði BH þar sem lið KR sigraði 4 – 1 í spennandi og skemmtilegum úrslitaleikjum en allir einliðaleikir fóru í oddalotu en BH sigraði í tvíliðaleik.

Lið bikarmeistara KR 2025, f.v. Ellert, Pétur og Guðbjörg

 

Aðrar fréttir