Lokahóf – kosning og skráning hafin
Lokamót BTÍ verður haldið föstudaginn 16. maí í sal BH að Strandgötu í Hafnarfirði. BH-ingar hafa efnt til skemmtilegrar kosningar um leikmenn ársins, leik ársins, hár ársins, sjálfboðaliða ársins svo nokkuð sé nefnt. Borðtennisfólk er hvatt til að kjósa.
Um kvöldið er svo lokahóf þar sem tilkynnt verður um úrslit í kosningunni og léttar veitingar á staðnum. Lokahófið er ætlað 18 ára og eldri. Aðgangur kostur 4.000 kr og skráning er hafin en hún er í gegnum vefinn.