Matthías Þór Sandholt leikur á EM undir 21 árs
Matthías Þór Sandholt leikur á EM fyrir leikmenn undir 21 árs, sem fram fer í Bratislava í Slóvakíu 7.-11. maí. Matthías fékk boð á mótið sem „wildcard“. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland á fulltrúa á mótinu, sem hefur farið fram frá árinu 2017.
Á þessu móti leika 48 bestu leikmennirnir í karla og kvennaflokki á þessum aldri, auk 8 „wildcard“ leikmanna. Fyrst er leikið er í 12 fjögurra manna riðlum, en átta stigahæstu leikmennirnar koma inn í annarri umferð, þegar aftur verður skipt í riðla. Nánar má lesa um fyrirkomulagið á vef ETTU.
Matthías leikur í riðli 9 og mætir þeim Julian Rzihauscek frá Austurríki (kl. 12.30 að staðartíma), Pert Marten Lehtlaan frá Eistlandi (kl. 16.20) og Hugo Deschamps frá Frakklandi (kl. 20.20). Tveir efstu leikmennirnir úr riðlinum fara áfram í næstu umferð keppninnar.
Þann 8. maí leikur Matthías svo í tvíliðaleik og tvenndarleik.
Gestur Gunnarsson verður Matthíasi til aðstoðar á mótinu.
Frétt um mótið á vef ETTU: https://www.ettu.org/europes-rising-stars-set-to-shine-at-2025-under-21-championships-in-slovakia/
Vefur mótsins: https://www.ettu.org/european-under-21-championships/
Forsíðumynd af Matthíasi frá úrslitakeppninni í 1. deild karla.