Reglugerð um Íslandsmót uppfærð
Reglugerð um Íslandsmót hefur verið uppfærð á vefnum. Ákveðið var af hálfu stjórnar BTÍ þann 18. mars sl. að samþykkja tillögu Ástu Melittu Urbancic sem flutt var á síðasta ársþingi og rædd án andmæla fundarmanna um að breyta síðustu málsgrein 1. gr. um keppnisflokka og aðgengi.
Uppfærð grein hljóðar svona
„Lágmarksþátttaka í hverjum aldursflokki eru tveir í einliðaleik og tvö pör í tvíliðaleik og tvenndarleik á Íslandsmóti karla og kvenna, Íslandsmóti unglinga og Íslandsmóti öldunga til að keppni fari fram í flokknum. Ef flokkur uppfyllir ekki þessi skilyrði verður keppni í flokknum sameinuð keppni í næsta flokki fyrir ofan í aldursflokkum unglinga, ef keppt er í þeim flokki, en í næsta aldursflokki fyrir neðan í aldursflokkum öðlinga ef það er keppt í þeim flokki. Annars skal keppt sameiginlega með næsta aldursflokki fyrir neðan í unglingaflokki og næsta aldursflokki fyrir ofan í öðlingaflokki. Þó skal keppt þannig að þeir keppendur sem flytjast í annan flokk hafi ekki áhrif á úrslit í þeim flokki sem þeir sameinast, þ.e. að keppa þarf í riðli þar sem allir leika við alla. Ef leikið er í tveimur riðlum fari keppendur úr öðrum aldursflokki ekki í undanúrslit. Veittur er Íslandsmeistaratitill í öllum flokkum þar sem skráðir eru keppendur til leiks.“
Með þessu er snúið aftur til fyrra fyrirkomulags á sömu reglugerð og hefur uppfærð reglugerð verið birt á vefnum.
Tillaga Ástu í heild sinni og rökstuðning má lesa um hér á vefnum.