Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

10. og síðasta umferð í 1. deild kvenna fer fram í vikunni

Lokaumferðin í 1. deild kvenna fyrir úrslitakeppnina fer fram í vikunni. 

Miðvikudagskvöldið 28. mars kl. 19 tekur HK á móti KR-B í Snælandsskóla og skiptir sá leikur miklu í baráttunni um 3. sætið í deildinni.

Fimmtudagskvöldið 29. mars leika tvö efstu liðin, Víkingur og KR-A í TBR-húsinu kl. 20 (frestað frá 28. mars). Með sigri tryggja Víkingskonur sér deildarmeistaratitilinn.

Enn á eftir að leika leik Dímonar og Víkings, sem átti að fara fram 3. mars.

Staðan í deildinni: 1. deild kvenna 2011-2012 úrslit

ÁMU

Aðrar fréttir