9. umferð í 1. deild kvenna verður leikin í vikunni
9. og næstsíðasta umferð í 1. deild kvenna verður leikin í vikunni.
Samkvæmt leikjaáætlun mætast KR-B og Víkingur-A í KR-heimilinu fimmtudaginn 15. mars.
KR-A á að taka á móti Dímoni föstudaginn 16. mars en beðið hefur verið um frestun þess leikjar. Leikurinn fer fram laugardaginn 24. mars kl. 19.
ÁMU (uppfært 21.3.)