Patrick Stobberup og Kolfinna Bjarnadóttir sigruðu á Reykjavíkurleikunum
Borðtennismót Reykjavíkurleikana fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal um helgina.
Keppt var í karla– og kvennaflokki þar sem margir af bestu borðtennismönnum landsins
ásamt gestum frá Kína, Rúmeníu og Danmörku léku.
Í karlaflokki léku í undanúrslitum Magnús K. Magnússon gegn félaga sínum
úr Víkingi Kristjáni Jónassyni, leikar fóru þannig að Magnús sigraði 3 0 (11-5, 11-3, og 11-6).
Í hinum undanúrslitaleiknum lék Daninn Patrick Stobberub við Daða F. Guðmundsson úr Víkingi,
leikar fóru þannig að Patrick sigraði 3 0 (11 9, 11 8, 11 6).
Úrslitaleikinn léku því Patrick Stobberup Danmörku gegn Magnúsi K. Magnússyni Víkingi.
Leikurinn var mjög skemmtilegur og hörku spennandi þar sem Patrick sigraði að lokum
3 2 (10 12, 11 3, 11 7, 7 -11, og 11 7).
Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Kolfinna Bjarnadóttir HK gegn Íslandsmeistaranum
Evu Jósteinsdóttur Víkingi. Kolfinna sigraði 3 1 (12-10, 11-13, 11-5 og 11-6).
Í hinum undanúrslitaleiknum léku Sigrún E. Tómasdóttir KR og Aldís R. Lárusdóttir KR.
Leikar fóru þannig að Sigrún sigraði 3 1(11-8, 11-8, 9-11 og 11-6).
Úrslitaleikinn léku því Kolfinna Bjarnadóttir HK gegn Sigrúnu E. Tómasdóttur KR. Kolfinna
sigraði nokku örugglega 3 -0 (11 -7, 11 -7 og 12 -10).