Íslenska meyjaliðið sigraði lið Skotlands á EM unglinga
Íslenska meyjaliðið vann annan liðsleik sinn á mótinu þegar þær lögðu lið Skotlands, 3-1. Drengjaliðið tapaði 2-3 fyrir liði Bosníu-Herzegóvínu.
Helena Árnadóttir vann sinn fyrsta einliðaleik á mótinu, og það gerðu líka Alexander Ivanov og Benedikt Aron Jóhannsson í drengjaflokki.
Úrslit í liðakeppni 14. júlí:
Meyjalið 15 ára og yngri:
Ísland – Lettland 0-3
Guðbjörg Vala tapaði einliðaleiknum 1-3 og tvíliðaleikurinn tapaðist 1-3.
Ísland – Skotland 3-1
Guðbjörg Vala vann báða einliðaleiki sína, þann fyrri 3-0 og þann seinni 3-1. Helena vann sinn einliðaleik 3-0 en stelpurnar töpuðu tvíliðaleiknum 1-3.
Sveinalið 15 ára og yngri.
Ísland – Holland 0-3
Kristján og Lúkas töpuðu báðir sínum einliðaleik 1-3 en tvíliðaleikurinn tapaðist 0-3.
Liðið lauk keppni í neðsta sæti R-riðli.
Drengjalið 16-18 ára.
Ísland – Bosnía-Herzegóvína 2-3
Benedikt Aron vann fyrri einliðaleik sinn 3-0 en tapaði þeim seinni 0-3. Alexander vann sinn leik 3-0 og var Ísland því 2-1 yfir að loknum þremur leikjum. Því miður töpuðust síðustu tveir leikirnir og þar með liðsleikurinn 2-3.
Lið Bosníu-Herzóvínu sigraði í R-riðli en lið Íslands lauk keppni í neðsta sæti riðilsins.
Leikir í liðakeppninni 15. júlí
Meyjalið 15 ára og yngri
15.7. 09.00 Ísland – England
Meyjaliðið lýkur keppni í O-riðli. Síðan verður spilað um einstök sæti, væntanlega síðdegis 15. júlí.
Sveinalið 15 ára og yngri
15.7. 11.00 Ísland – Írland
Liðin mætast í keppni um sæti 37-40. Sigurliðið leikur um sæti 37 en tapliðið um sæti 39 við annað hvort Möltu eða Eistland og fer sá leikur væntanlega fram síðdegis 15. júlí.
Drengjalið 16-18 ára
15.7. 09.00 Ísland – Kýpur
Ísland og Kýpur mætast í lokaleiknum í flokknum og keppa um 38. sæti.
Dregið hefur verið í riðla í einliðaleik og hefst keppni 16. júlí.
Hér má fylgjast með leikjunum á mótinu og sjá úrslit í einstökum viðureignum: https://www.ettu.org/european-youth-championships/.
Á forsíðumyndinni frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur fagna þær Guðbjörg Vala og Helena sigrinum gegn Skotlandi með Sól Kristínardóttur Mixa, leikmanni í stúlknaflokki og Gesti Gunnarssyni þjálfara.


