Borðtenniskeppnin á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar hefst 22. júlí
Dregið hefur verið í riðla í borðtenniskeppninni á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Skopje, Norður-Makedóníu. Borðtenniskeppnin hefst 22. júlí.
Í einliðaleik meyja dróst Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir í 2. riðil.
Leikjaröð:
22.7. kl. 11.30 Varvara Zaitsava, Belarús (Hvíta-Rússland)
22.7. kl. 18.10 Laura Alba Pinna, Ítalíu
23.7. kl. 14.50 Nina Skerbinz, Austurríki
Í einliðaleik sveina leikur Kristján Ágúst Ármann í 3. riðli.
Leikjaröð:
22.7. kl. 12.30 Nikoloz Chkhartisvili, Georgíu
23.7. kl. 10.10 Martin Frizel, Litháen
23.7. kl. 16.50 Patryk Zyworonek, Póllandi
Í tvenndarleik mæta þau Guðbjörg Vala og Kristján pari frá Lettlandi, þeim K. Terentjevs og P. Stasevska. Leikurinn fer líklega fram 23.7. kl. 19.50.
Uppgefinn tími er staðartími, og er klukkan í Skopje tveimur tímum á undan íslenskum tíma.
Að kvöldi 20. júlí var setningarathöfn og var Kristján Ágúst fánaberi íslenska hópsins. Mynd frá Sigþrúði Ármann.

Vefsíða mótsins: https://skopje2025.sporteurope.org/ og hér má sjá leiki dagsins og úrslit: https://skopje2025.sporteurope.org/schedule-and-results/
Streymi frá mótinu: https://tinyurl.com/yawutete
ÍSÍ hefur birt mynd af öllum íslenska hópnum:



