Úrslit ráðin á EM unglinga
Evrópumeistaramóti unglinga í borðtennis lauk í dag með úrslitaleikjum í einstaklingskeppni. Frakkar, Þjóðverjar og Rúmenar eignuðust Evrópumeistara í einliðaleik, þar af fengu Frakkar tvo titla. Portúgal og Ísrael fögnuðu fyrstu Evrópumeisturum sínum frá upphafi með sigrum í tvenndarkeppni og tvíliðaleik meyja í kadettflokki.