Hjálmarsmót Borðtennisdeildar KR 18. og 19. október 2025
Borðtennisdeild KR heldur Hjálmarsmótið helgina 18. og 19. október 2025 í Íþróttahúsi Hagaskóla.
Útdráttur á Tournament Software
Laugardagur 1. Blokk – Hefst kl 14:00
Stelpur og strákar u16 (2010 eða fyrr)
Meistaraflokkur karla Elite
Meistaraflokkur kvenna Elite
Karlar og konur 40 ára og eldri
Sunnudagur 2. Blokk – Hefst kl 9:00
Stelpur og strákar u12 (2014 eða fyrr)
Byrjendaflokkur
Opinn Flokkur C (u 1500 stig)
Opinn Flokkur B (u 2000 stig)
Sunnudagur 3. Blokk – Hefst kl 14:00
Big Table tvíliðaleikur með forgjöf
Fyrirkomulag keppni
- Keppa má í 3 flokkum alls, en þó einungis 1 flokki í hverri „blokk“.Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að fá fleiri leiki.
- Flokkar í 1. blokk hefjast á milli 14:00-16:00.
- Flokkar í 2. blokk hefjast á milli 09:00-11:00.
- 3. blokk hefst kl 14:00.
- Keppt verður í 4-5 manna riðlum í öllum flokkum þar sem efstu 2 fara áfram í beinan útslátt. Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum.
Skráning
Skráning fer fram í gegnum skráningarform KR. Skráningarformið má finna hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSds2qA00v4ieCUxcutA7pYWEPJzhlWJF-xSlzR–7p2XMlv_A/viewform
Ef skráningarformið gengur ekki má senda skráningu með tölvupósti á netfangið [email protected] og [email protected] . Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu, félag og skal taka skýrt fram í hvaða flokkum keppandinn vill keppa í, ásamt liðsfélaga í bigtable tvíliðaleiknum ef við á.
Skráningafrestur rennur út fimmtudaginn 16. október kl 19:00.
Sjá nánar í auglýsingu


