Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Pepsi unglingamót Víkings

PEPSI unglingamót Víkings í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu Laugardaginn 6. desember 2025.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins:

Laugardagur 6. des:

  • 11:00 piltar og stúlkur 10. ára og yngri (f. 2015 og yngri)
  • 12:00 piltar og stúlkur 11-12 ára (f. 2013-2014)
  • 13:00 Drengir og stúlkur 13-15 ára(f. 2012-2010)

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Aðeins má leika í einum aldursflokki.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500-

Yfirdómari: Pétur Ó. Stephensen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Ísak Unnarsson

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 4.des kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu

Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]. og sms skeyti.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 4.des kl. 17:00.

Pepsi unglingamót

Aðrar fréttir