Borðtennismaður mánaðarins: Anton Óskar Ólafsson
Í desember 2025 er það Anton Óskar Ólafsson sem hlýtur nafnbótina borðtennismaður mánaðarins. Anton er sautján ára leikmaður Garps á Laugalandi en æfir nú með Selfossi annað árið í röð þar sem hann er á öðru ári náms við Fjölbrautarskóla Suðurlands.
Anton var einn af fyrstu iðkendum ungrar Borðtennisdeildar Garps þegar hann byrjaði tíu ára gamall að æfa hjá Bæring Jóni Breiðfjörð Guðmundssyni. Hann hefur vakið athygli fyrir góða færni og úrslit, þrátt fyrir að framan af hafi hann bara getað æft einu sinni í viku og afar sjaldan við sterkari leikmenn. Anton er því frábært dæmi um hversu langt er hægt að ná með ástríðuna og áhugann að vopni og hefur haft mjög góð áhrif í sveitinni heimafyrir. Hann hlaut fjölda tilnefninga fyrir nafnbótina og er sannarlega vel að henni kominn.
Eitt af stærri afrekum Antons átti sér stað vorið 2025 þegar hann var einn af lykilleikmönnum liðs Selfoss sem vann 3. deild karla og hjálpaði við að koma liðinu upp um deild í fyrsta sinn. Fréttaritari heimsótti Anton á æfingu á Selfossi, en þar gengur hann undir gælunafninu „veiðimaðurinn“ fyrir spilastíl sinn.
Hvaða gúmmí notarðu?
„Ég nota DNA Platinum núna.“
Ertu með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki?
„Nei, nei, ekkert svoleiðis í bili.“ Að svara þessari spurningu neitandi hefur verið algengt hjá borðtennismönnum mánaðarins og hvetur fréttaritari iðkendur sportsins að verða ögn hjátrúarfyllri!
Hver er uppáhalds borðtennisstjarnan þín?
„Fyrirmyndin mín er Truls Möregårdh frá Svíþjóð.“
Hver er uppáhalds sigurinn þinn?
„Eitt það skemmtilegasta var á Íslandsmótinu í unglingaflokki þegar ég og Benni félagi minn unnum tvíliðaleikinn. Sú tilfinning stendur mjög upp úr.“ Anton hefur unnið fjóra Íslandsmeistaratitla í borðtennis, þar af tvo með Benedikt Aroni Jóhannssyni úr Víkingi á síðasta keppnistímabili.
Áttu góða sögu úr borðtennisferð?
„Já, úr fyrstu unglingalandsliðsferðinni til Noregs. Á leiðinni heim var einn úr hópnum sem ætlaði að taka Big Mac frá McDonald’s með sér til baka, en var stoppaður í tollinum og við hin þurftum að bíða svolítinn tíma eftir honum. Það var frekar fyndið.“
Er einhver leikmaður eða þjálfari sem hefur haft sérstök áhrif á þig?
„Já, það er sérstaklega Ruben, eftir að hann tók við þjálfarastarfinu er æfingum búið að fjölga og maður hefur haft tækifæri til þess að bæta sig.“
Af hverju er borðtennis besta íþróttin?
„Það er bara alltaf gaman. Íþróttin er fjölbreytt, allir geta spilað og stemningin í kringum borðtennis er mjög skemmtileg.“
Þau sem vilja sjá meira af Antoni eru hvött til að kíkja á myndbönd á síðu Borðtennissambandsins á TikTok auk þess að kíkja á Instagram-síðu Borðtennisdeildar Garps, sem Anton hefur stýrt undanfarin misseri.
Lesendur eru jafnframt hvattir til að halda áfram að senda inn tilnefningar, til að styðja við góða umfjöllun árið 2026.


