Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Eiríkur Logi sigraði í undir 23 ára flokki á móti í Osló

Eiríkur Logi Gunnarsson, KR og Þorbergur Freyr Pálmarsson, BH, léku á móti í Osló í Noregi um síðustu helgi. Báðir léku þeir í nokkrum flokkum.

Eiríkur Logi sigraði í flokki U23 ára og vann úrslitaleikinn örugglega 3-0. Þorbergur varð í 5.-8. sæti í flokknum.
Þeir spiluðu líka í flokki Herrer åben, þar sem Eiríkur Logi varð í 5.-8. sæti.
Einnig í flokki Ranking 1, þar sem þeir höfnuðu hvor um sig í 3. sæti í sínum 5 manna riðli.

Hér má sjá úrslitin úr mótinu: KM Oslo & Akershus 2025

Forsíðumynd af Eiríki úr myndasafni.

Aðrar fréttir