Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Styrkleikalisti 1. janúar 2026 birtur á vefnum

Styrkleikalisti fyrir 1. janúar 2026 (kallaður eftir viku 1) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.

Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr Pepsi aldursflokkamóti Víkings 6. desember og Jólamóti Vísir 28. desember verið lesin inn í listann.

Bæring Logi Björnsson, Vísi, var metinn inn á listann byggt á árangri í Jólamóti Vísis.

Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.

Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].

Á forsíðunni má sjá mynd af sigurvegurum á drengjaflokki á Pepsi móti Víkings.

Aðrar fréttir