Víkingur-A áfram í forystu í 1. deild karla
Keppni í 1. deild karla hélt áfram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 10. janúar en þá voru leiknir leikir í 7. og 8. umferð.
Íslandsmeistarar Víkings-A eru enn ósigraðir í deildinni og eru á toppnum með 16 stig eftir 8 umferðir. BH-A fylgir fast á eftir með 14 stig en þessi tvö lið mætast í lokaumferðinni þann 7. febrúar. KR-A hefur 6 stig, BH-B, HK-A og KR-B eru með 4 stig.
Það stefnir því í spennandi lokaleiki þann 7. febrúar, bæði á toppi og botni deildarinnar.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
BH-B – Víkingur-A 0-6
BH-A – KR-A 6-1
KR-B – HK-A 6-2
KR-B – BH-A 0-6
Víkingur-A – KR-A 6-0
BH-B – HK-A 1-6
Forsíðumynd af A-liði Víkings úr myndasafni.


