BH tapaði leikjum sínum í Europe Trophy keppninni
Karlalið BH tapaði leikjum sínum í Europe Trophy keppninni, sem fram fór í Eistlandi helgina 16.-18. janúar 2026. Liðið tapaði 0-3 fyrir UKS Piast Poprawa Ostrzeszów frá Póllandi, Sanberg – Evopipes frá Lettlandi og TalTech Sports Club frá Eistlandi en 1-3 fyrir liði VRSC – Nemenčinė frá Litháen. Magnús Jóhann Hjartarson vann eina leikinn gegn Litháunum. Nokkrum einstaklingsleikjum töpuðu BH-ingar í oddalotu.
Hlekkur á dagskrána og stöðuna í riðlinum:
https://www.ettu.tv/events/83/50/2/5/5
Hlekkur á útsendingarnar frá leikjunum:
https://www.ettu.tv/videos/0/-1/949
Forsíðumynd af Magnúsi Jóhanni úr myndasafni.


