Víkingur-A deildarmeistarar í 1. deild karla
Lokaleikirnir í 1. deild karla voru leiknir í TBR-húsinu í Laugardal laugardaginn 7. febrúar. Víkingur-A tryggði sér sigur í deildinni en liðið lauk keppni með 18 stig.
Talsvert var um forföll í leikjum dagsins, bæði vegna veikinda og meiðsla. Auk þess seinkaði flugi tveggja leikmanna Víkings-A frá Svíþjóð og léku þeir því ekki með liðinu í 9. umferð og var sá leikur eini leikurinn sem Víkingur-A tapaði í deildinni.
Lokastaðan í deildinni er sú að Víkingur-A er deildarmeistari með 18 stig en BH-A hafnar í 2. sæti með 16 stig. KR-A og KR-B hafa 8 stig, HK-A er með 6 stig og BH-B er neðst með 4 stig.
HK-A leikur umspilsleik við KR-C um sæti í deildinni á næsta keppnistímabili en BH-B fellur í 2. deild.
Fyrr um daginn vann BH-C 2. deild svo BH mun eiga tvö lið í 1. deild á næsta keppnistímabili.
Fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn sem verður haldin í apríl.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
BH-B – KR-A 4-6
HK-A – BH-A 3-6
Víkingur-A – KR-B 3-6
BH-A – Víkingur-A 1-6
KR-A – HK-A 3-6
KR-B – BH-B 6-0
Forsíðumynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


