Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót unglinga fer fram 28. febrúar – 1. mars 2026

Íslandsmót unglinga í borðtennis 2026 fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla, Sólvöllum 2, 800 Selfossi, laugardaginn 28. febrúar og sunnudaginn 1. mars 2026. Mótið er í umsjón Borðtennissambands Íslands í samvinnu við Borðtennisdeild Umf. Selfoss.

Leikið verður í fjórum aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik og þremur aldursflokkum í tvíliðaleik og tvenndarkeppni sbr. reglugerð BTÍ um Íslandsmót. Leikið verður með hvítum þriggja stjörnu Stiga kúlum.

Laugardaginn 28. febrúar 2026, verður leikið í tvenndarkeppni og leikið fram að undanúrslitum í einliðaleik. Sunnudaginn 1. mars verður leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik.

Gert er ráð fyrir að keppni hefjist klukkan 10 báða daga en ef skráning verður óvenju mikil hefjast leikar fyrr. Endanleg tímaáætlun verður gefin út þegar skráningu er lokið.

Dagskrá lýkur með sameiginlegri verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka á sunnudegi.

Fyrirhugað er að veitingar verði seldar á staðnum.

Laugardagur 28. febrúar
Kl.10:00 Setning mótsins. Allir keppendur ganga inn í salinn við hátíðlega athöfn.
Kl.10:15 Tvenndarkeppni í öllum flokkum:
13 ára og yngri, fædd 2013 og síðar.
14-15 ára, fædd 2011-2012.
16-18 ára, fædd 2008-2010.

Einliðaleikur fram að undanúrslitum:
Kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka 11 ára og yngri, fæddir 2015 og síðar.
Kl. 11:00 Einliðaleikur táta 11 ára og yngri, fæddar 2015 og síðar.
Kl. 11:30 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2013-2014.
Kl. 11:30 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2013-2014.
Kl. 14:00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2011-2012.
Kl. 13:00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2011-2012.
Kl. 14:00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2008-2010.
Kl. 14:00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2008-2010.

Sunnudagur 1. mars
Tvíliðaleikur:
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur pilta 13 ára og yngri, fæddir 2013 og síðar.
Kl. 10:30 Tvíliðaleikur telpna 13 ára og yngri, fæddar 2013 og síðar.
Kl. 11:00 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2011-2012.
Kl. 11:00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2011-2012.
Kl. 11:00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2008-2010.
Kl. 11:30 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2008-2010.

Einliðaleikur – undanúrslit og úrslit:
Kl 13:00 Einliðaleikur hnokka 11 ára og yngri, fæddir 2015 og síðar.
Kl. 13:00 Einliðaleikur táta 11 ára og yngri, fæddar 2015 og síðar.
Kl. 13:00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2013-2014.
Kl. 13:30 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2013-2014.
Kl. 14:00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2011-2012.
Kl. 14:00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2011-2012.
Kl. 14:00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2008-2010.
Kl. 14:30 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2008-2010.

Kl. 15:00 Verðlaunaafhending í öllum flokkum

Þátttökugjöld og skráning

Þátttökugjald er 3.000 kr. í einliðaleik og 3.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.500 kr. á mann).

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 24. febrúar 2026 kl. 21:00.

Skráning og greiðsla keppnisgjalda fer fram í gegnum skráningar- og greiðslukerfi BTÍ. . Keppnisgjöld verða ekki endurgreidd eftir að dregið hefur verið í mótið.

Dregið verður í mótið í Stóragerði 30, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 25. febrúar kl. 21:00.

Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ.

Mótstjórn
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, gsm. 868-6873, [email protected]
Guðrún Gestsdóttir, gsm. 896-4849, [email protected]
Stefán Birnir Sverrisson, gsm. 612-9566, [email protected]
Sveinbjörn Ari Gunnarsson, gsm. 866-7266, [email protected]

Aðrar fréttir