Keppendur ÍFR komu heim með fimm verðlaun frá Malmö
Átta keppendur úr ÍFR tóku um síðustu helgi þátt í borðtennismóti fyrir fatlaða leikmenn í Malmö í Svíþjóð. Keppendurnir náðu flottum árangri og komu heim með fimm verðlaun. Allir keppendurnir unnu leik á mótinu og sumir unnu marga leiki.
Jóna Kristín Erlendsdóttir sigraði í flokki 1-3b, sjá mynd neðst.
Jóna Kristín og Hákon Atli Bjarkason fengu bronsverðlaun í tvíliðaleik b, sömuleiðis Nóni Sær Ágeirsson og Volodymyr Cherniavskyi.
Anna Karen Malmquist spilaði frábærlega og komst í A-úrslit í U15 ára flokki.

Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


