Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Tugir mættu á opið hús á Ströndum

Laugardaginn 21. febrúar var opið hús til að kynna borðtennis í Félagsheimilinu Baldri í Drangsnesi og í Íþróttahúsinu á Hólmavík. Auk þess var haldið þjálfaranámskeið í Drangsnesi.
Um 20 manns mættu á kynninguna í Drangsnesi og um 15 á Hólmavík. Nokkrir þátttakendur mættu á þjálfaranámskeiðið.

Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson sá um kynningarnar en honum til aðstoðar var Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.

BTÍ fékk styrk til að kynna borðtennis á Vestfjörðum, eins og fram kemur í frétt frá 14. febrúar sl.

Sunnudaginn 22. febrúar er landsdómaranámskeið og opið hús á Patreksfirði.

Myndir frá Pétri og Jóhannesi.

Aðrar fréttir