Þrír nýir landsdómarar á Vestfjörðum og góð mæting á opið hús
Sunnudaginn 22. febrúar var haldið landsdómaranámskeið og opið hús í Íþróttahúsinu Bröttuhlíð á Patreksfirði.
Fjórir sátu landsdómaranámskeiðið; þar af tóku þrír prófið og stóðust þeir allir. Þeir hafa því öðlast landsdómararéttindi.
Nýju landsdómararnir eru:
Daniel Hubinský
Paulo David
Pawel Dobosz
Um 15 börn og nokkrir fullorðnir sóttu opið hús á Patreksfirði.
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson sá um dómaranámskeiðið og opna húsið en honum til aðstoðar var Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.
BTÍ fékk styrk til að kynna borðtennis á Vestfjörðum, eins og fram kemur í frétt frá 14. febrúar sl.
Myndir með fréttinni eru frá Birnu Hannesdóttur, svæðisfulltrúa UMFÍ á Vestfjörðum.










Uppfært 23.2. með nöfnum nýju landsdómaranna.


