Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Metþátttaka á Íslandsmóti unglinga um næstu helgi

Íslandsmót unglinga verður haldið í Vallaskóla á Selfossi helgina 28. febrúar – 1. mars.

Skráningu í mótið er lokið og þetta árið er metþátttaka í mótinu. Alls eru 129 keppendur frá 15 félögum skráðir til leiks. Þar á meðal má nefna keppendur frá Héraðssambandinu Hrafna-Flóka, en að öllum líkindum eru þetta í fyrsta skipti sem keppendur frá þeim taka þátt í Íslandsmóti unglinga. Til viðbótar má nefna að keppendur koma frá Gnúpverjum, Laugdælum, Leikni, Stokkseyri og Vísi, auk þeirra félaga sem að jafnaði taka þátt í þessum mótum.

Dregið hefur verið í mótið og hér má skoða dráttinn: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/7429672E-0E8D-4357-923F-51D11D50434E

Aðrar fréttir