Átta félög unnu titlana á Íslandsmóti unglinga
Íslandsmót unglinga 2026 var haldið í Vallaskóla á Selfossi 28. febrúar – 1. mars en þetta er í fyrsta skiptið sem mótið er haldið á Selfossi. Metþátttaka var á mótinu og voru skráðir keppendur alls 130 frá 15 félögum. Keppt var í 17 flokkum.
Íslandsmeistarar komu frá félögunum BH, Dímon, Garpi, HK, ÍFR, KR, Umf. Vísi og Víkingi.
Þær Agnes Lovísa Jóhannsdóttir úr ÍFR og Anna Karen Malmquist, Umf. Vísi, unnu fyrstu titla sinna félaga á Íslandsmóti unglinga þegar þær sigruðu í tvíliðaleik meyja 14-15 ára. Umf. Gnúpverja fékk sín fyrstu verðlaun á Íslandsmóti í borðtennis þegar Ingibjörg Halla Gestsdóttir fékk brons í einliðaleik táta 11 ára og yngri.
Að þessu sinni vann enginn leikmaður alla þrjá titlana í sínum flokki, sem er óvenjulegt. Þau Brynjar Gylfi Malmquist, HK; Benedikt Darri Malmquist, HK; Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR; Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpi; Helena Árnadóttir, KR; Júlía Fönn Freysdóttir, KR og Lúkas André Ólason, KR urðu tvöfaldir meistarar á mótinu.
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir heldur sigurgöngu sinni áfram en hún hefur unnið sinn aldursflokk í einliðaleik á hverju ári frá 2019, að undanskildu árinu 2020 þegar mótið féll niður vegna kórónuveiru faraldursins.
Verðlaunahafar í einstökum flokkum:

Einliðaleikur hnokka 11 ára og yngri
1. Brynjar Gylfi Malmquist, HK
2. Björn Kári Valsson, HK
3.-4. Pétur Steinn Stephensen, Víkingur
3.-4. Sindri Karl Heimisson, HK

Einliðaleikur táta 11 ára og yngri
1. Marsibil Silja Jónsdóttir, Dímon
2. Anna Karen Malmquist, Umf. Vísir
3.-4. Ingibjörg Halla Gestsdóttir, Umf. Gnúpverjar
3.-4. Lóa Jolanta Dariuszdóttir, KR

Einliðaleikur pilta 12-13 ára
1. Benedikt Darri Malmquist, HK
2. Guðmundur Ólafur Bæringsson, Garpur
3.-4. Andri Sigurjón Hrundarson, HK
3.-4. Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH

Einliðaleikur telpna 12-13 ára
1. Júlía Fönn Freysdóttir, KR
2. Anna Villa Sigurvinsdóttir, KR
3.-4. Guðbjörg Stella Pálmadóttir, Garpur
3.-4. Helga Ngo Björnsdóttir, KR

Einliðaleikur sveina 14-15 ára
1. Lúkas André Ólason, KR
2. Adam Lesiak, Víkingur
3.-4. Sigurður Einar Aðalsteinsson, BH
3.-4. Sindri Þór Rúnarsson, BH

Einliðaleikur meyja 14-15 ára
1. Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpur
2. Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR

Einliðaleikur drengja 16-18 ára
1. Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingur
2. Kristján Ágúst Ármann, BH
3.-4. Heiðar Leó Sölvason, BH
3.-4. Viktor Daníel Pulgar, KR

Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára
1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
2. Helena Árnadóttir, KR
3.-4. Marta Stefánsdóttir, KR
3.-4. Weronika Grzegorczyk, Garpur

Tvíliðaleikur pilta 13 ára og yngri
1. Benedikt Darri Malmquist/Brynjar Gylfi Malmquist, HK
2. Andri Sigurjón Hrundarson/Jörundur Steinar Hansen, HK
3.-4. Antoni Ben Powichrowski/Sindri Karl Heimisson, HK
3.-4. Björn Kári Valsson/Hjörleifur Brynjólfsson, HK

Tvíliðaleikur telpna 13 ára og yngri
1. Anna Villa Sigurvinsdóttir/Júlía Fönn Freysdóttir, KR
2. Guðbjörg Stella Pálmadóttir/Marsibil Silja Jónsdóttir, Garpur/Dímon
3.-4. Linda Björt Jóhannsdóttir/Saga Katrín Sveinbjörnsdóttir, Selfoss
3.-4. Katla Tran Michaelsdóttir/Soffía Ramona Devaney, KR

Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára
1. Benjamín Bjarki Magnússon/Sigurður Einar Aðalsteinsson, BH
2. Sindri Þór Rúnarsson/Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH
3.-4. Geir Thorberg Geirsson/Sævar Hörður Sverrisson, Garpur
3.-4. Magnús Loftsson/Stefán Bragi Bjarkason, BH

Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára
1. Agnes Lovísa Jóhannsdóttir/Anna Karen Malmquist, ÍFR/Umf. Vísir
2. Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir/Þórdís Gunnarsdóttir, Dímon/KR

Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára
1. Heiðar Leó Sölvason/Kristján Ágúst Ármann, BH
2. Lúkas André Ólason/Viktor Daníel Pulgar, KR
3.-4. Almar Elí Ólafsson/Anton Óskar Ólafsson, Selfoss
3.-4. Anton Tristan Atlason Lira/Mikael Björn Melsted, KR

Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára
1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir/Helena Árnadóttir, KR
2. Guðný Lilja Pálmadóttir/Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir, Garpur
3.-4. Lea Mábil Andradóttir/Weronika Grzegorczyk, Garpur
3.-4. Marta Stefánsdóttir/Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR

Tvenndarleikur 13 ára og yngri
1. Guðmundur Ólafur Bæringsson/Guðbjörg Stella Pálmadóttir, Garpur
2. Brynjar Gylfi Malmquist/Anna Karen Malmquist, HK/Umf. Vísir
3.-4. Esteban Gabríel O. Gunnarsson/Linda Björt Jóhannsdóttir, Garpur/Selfoss
3.-4. Valur Freyr Stefánsson/Marsibil Silja Jónsdóttir, Dímon

Tvenndarleikur 14-15 ára
1. Þorgeir Óli Eiríksson/Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpur
2. Sindri Snær Steinarsson/Guðrún Birna Sveinbjörnsdóttir, Selfoss
3.-4. Björgvin Arnar Arnarsson/Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR
3.-4. James Franklin Viggiano/Álfrún Milena Kvaran, KR

Tvenndarleikur 16-18 ára
1. Lúkas André Ólason/Helena Árnadóttir, KR
2. Viktor Daníel Pulgar/Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR
3.-4. Heiðar Leó Sölvason/Marta Stefánsdóttir, BH/KR
3.-4. Kristján Ágúst Ármann/Þórunn Erla Gunnarsdóttir, BH/KR
Úrslit úr öllum leikjum á mótinu eru aðgengileg á vef Tournament Software, sjá: https://www.tournamentsoftware.com/tournament/7429672e-0e8d-4357-923f-51d11d50434e
Myndir frá Finni Hrafni Jónssyni.


