Heiðar, Helena, Hergill og Þórunn Íslandsmeistarar í 1.-2. flokki
Heiðar Leó Sölvason, BH; Helena Árnadóttir, KR; Hergill Frosti Friðriksson, BH og Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR urðu Íslandsmeistarar á fyrra hluti Íslandsmótsins í borðtennis, sem fór fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 14. mars. Leikið var í 1. og 2. flokki og er þetta í fyrsta skipti sem Íslandsmótinu er skipt upp á þennan hátt.
Leikið verður í meistaraflokki 21.-22. mars.
Alls voru 63 leikmenn skráðir til leiks frá BH, BM, BR, Garpi, HK, ÍFR, KR, Selfossi, Umf. Laugdælum, Umf. Vísi og Víkingi. Fleiri keppendur voru frá ÍFR en oft áður og líklega er þetta í fyrsta skipti sem keppendur frá Umf. Vísi taka þátt í Íslandsmóti fullorðinna.
Verðlaunahafar:

1. flokkur karla
1. Heiðar Leó Sölvason, BH
2. Darian Adam Róbertsson Kinghorn, HK
3.-4. Anton Óskar Ólafsson, Selfoss
3.-4. Elvar Kjartansson, KR
Úrslitaleikurinn var æsispennandi og lauk með 11-9 sigri Heiðars í oddalotu (11-7, 10-12, 11-9, 6-11, 11-9). Heiðar varð Íslandsmeistari í 2. flokki karla 2025.

1. flokkur kvenna
1. Helena Árnadóttir, KR
2. Marta Dögg Stefánsdóttir, KR
3.-4. Anna Marczak, KR
3.-4. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR
Helena var öruggur sigurvegari í flokknum. Hún tapaði ekki lotu í flokknum og sigraði Mörtu 3-0 (11-6, 11-9, 11-3) í úrslitaleiknum. Þetta er annað árið í röð sem hún sigrar í 1. flokki kvenna.

2. flokkur karla
1. Hergill Frosti Friðriksson, BH
2. Ibrahim Almassri, BR
3.-4. Magnús Birgir Kristinsson, Víkingur
3.-4. Piotr Rajkiewicz, HK
Hergill lagði Ibrahim í þremur jöfnum lotum í úrslitaleiknum (11-9, 11-7, 11-9).

2. flokkur kvenna
1. Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR
2. Marta Dögg Stefánsdóttir, KR
3.-4. Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpur
3.-4. Lea Mábil Andradóttir, Garpur
Þórunn sigraði Mörtu 3-0 (11-5, 11-8, 11-8) í úrslitaleiknum. Þær mættust fyrr um daginn í undanúrslitum í 1. flokki en þá sigraði Marta 3-0. Bæði Marta og Þórunn fóru því heim með tvenn verðlaun af mótinu.
Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.
Úrslit úr öllum leikjum á mótinu má sjá á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/9faf368e-f351-4cc2-97f7-2cf2a3f5bfe5



