Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Garpsmótið í borðtennis 28. mars

Annað Garpsmótið í borðtennis fer fram í íþróttahúsi Laugalandsskóla í Holtum laugardaginn 28. mars nk.

Auk hefðbundnu unglingaflokkanna U11, U13 og U15 verður keppt í U9 flokki og opnum flokkum karla og kvenna. Lágmarksfjöldi þátttakenda í flokki er 2.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og fara efstu tveir leikmenn úr hverjum riðli og keppa í einföldum útslætti (ef fleiri en einn riðill er í flokki). Raðað verður í riðla samkvæmt styrkleikalista, sbr. 17. gr. keppnisreglna BTÍ. Mótið gildir til stiga á styrkleikalistanum. Leikmaður þarf að vinna 3 lotur til að vinna viðureignina, bæði í riðlunum og í útsláttarkeppninni.

Dagskrá:
● U9 strákar kl. 10:00 (fæddir 2016 og síðar)
● U9 stelpur kl. 10:00 (fæddar 2016 og síðar)
● U11 stelpur kl. 10:30 (fæddar 2014 og síðar)
● U11 strákar kl. 11:00 (fæddir 2014 og síðar)
● U13 stelpur kl. 12:00 (fæddar 2012 og síðar)
● U13 strákar kl. 12:30 (fæddir 2012 og síðar)
● U15 stelpur kl. 13:00 (fæddar 2010 og síðar)
● U15 strákar kl. 13:30 (fæddir 2010 og síðar)
● Opinn flokkur karla kl. 14:30
● Opinn flokkur kvenna kl. 14:30

Berist margar skráningar munu U13, U15 og opnu flokkarnir hugsanlega hefjast aðeins síðar um daginn og verður það auglýst hér í fréttinni strax að drætti loknum.

Leikið verður með hvítum Stiga 3 stjörnu kúlum á sex keppnisborðum (eða níu borðum og þá með auka sal, í takt við fjölda þátttakenda) og verða medalíur veittar fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.

Um mótsstjórn og dómgæslu sjá Bæring Jón Breiðfjörð Guðmundsson (s: 694-6586), Garpi og Sveinbjörn Ari Gunnarsson, Selfossi. Aðstoðarmaður vegna skráninga verður Auður Tinna Aðalbjarnardóttir.

Dregið verður í mótið í Laugalandsskóla fimmtudaginn 26. mars nk. kl. 19:00 en skráningarfrestur er til miðvikudagsins 24. mars kl. 21:00. Skráningar skulu berast á bæði netföngin [email protected] og [email protected] og skal taka fram fullt nafn leikmanns, kennitölu, félag og keppnisflokk, en einungis er heimilt að keppa í einum flokki. Þátttökugjald er 1.500 kr. og greiðist með millifærslu eða
reiðufé á mótstað.

Bréf um mótið: Garpsmótið 28.03.26

Aðrar fréttir