Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Nevena og Ingi Darvis Íslandsmeistarar í tvenndarleik

Íslandsmót fullorðinna hófst í dag í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Úrslit réðust í tvenndarleik á mótinu en þar urðu Nevena Tasic og Ingi Darvis Rodriquez í Víkingi Íslandsmeistarar eftir að hafa sigrað systkinin Guðbjörgu Völu Gunnarsdóttur og Gest Gunnarsson í spennandi úrslitaleik. Jafnt var eftir fyrstu tvo leikina en Nevena og Ingi reyndust sterkari í lokin og unnu 3-1.

Sjá má úrslit einstakra leikja á Tournament Software.

Myndin er af Íslandsmeisturunum í tvenndarleik, Inga Darvis og Nevenu Tasic.

Á morgun heldur keppnin áfram en þá verða undanúrslitaleikir og úrslitaleikir í tvíliðaleik kvenna og karla auk þess sem leikið verður í undanúrslitum og úrslitum í meistaraflokki karla og kvenna. Áhorfendur eru hvattir til að mæta á Strandgötuna á morgun. Auk þess verður bein útsending frá leikjum á Youtube rás BTÍ.

Dagskrá morgundagsins er svona

09.40 Húsið opnar
11.00 Undanúrslit: Tvíliðaleikur kvenna og karla
11.40 Úrslit: Tvíliðaleikur kvenna og karla
Hádegishlé
13.00 Undanúrslit: Meistaraflokkur kvenna
13.40 Undanúrslit: Meistaraflokkur karla
14.20 Úrslit: Meistaraflokkur kvenna
15.00 Úrslit: Meistaraflokkur karla
15.40 Verðlaunaafhending

Aðrar fréttir