Ingi Darvis og Sól Íslandsmeistarar
Úrslit réðust á Íslandsmóti fullorðinna í dag með úrslitaleikjum í tvíliðaleik og einliðaleik.
Sól Kristínardóttir Mixa varð Íslandsmeistari kvenna í annað sinn (síðast 2024) eftir ótrúlega endurkomu í úrslitaleiknum. Hún var 3-0 og 8-9 undir í fjórðu lotu en endaði á að sigra 4-3 með 12-10 í oddalotu. Allar lotur, nema ein, unnust með lágmarksmun. Guðbjörg Vala hafði unnið í Nevu Tasic 4-3 í mögnuðum undanúrslitaleik á meðan Sól vann Helenu Árnadóttur nokkuð örugglega 4-0.
Ingi Darvis varð Íslandsmeistari karla en hann vann Birgir Ívarsson nokkuð örugglega 4-0 í úrslitaleik karla (6, 6, 4, 4). Birgir vann 4-2 sigur á Benedikt Aron Jóhannssyni í undanúrslitum á meðan Ingi Darvis vann Davíð Jónsson 4-1 eftir að hafa lent undir 0-1.
Ingi Darvis vann þrefalt á mótinu og tapaði einungis einni lotu í einliðaleik (í undanúrslitum á móti Davíð Jónssyni).
Í tvíliðaleik var hann að vinna í fjórða sinn en félagi hans Benedikt Aron Jóhannsson var að vinna sinn fyrsta titil í meistaraflokki.
Kvennamegin skiptust titlarnir jafnt á leikmenn og félög.
Nevena Tasic vann sinn fjórða titil í tvenndarleik og þeir hafa allir verið með Inga Darvis.
Helena Árnadóttir og Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir urðu Íslandsmeistarar kvenna í tvíliðaleik í fyrsta sinn, sem er merkilegt fyrir þær sakir að þær eru í 10. bekk (á 16. ári) og að í þremur leikjum sínum töpuðu þær ekki lotu, þó þær hafi mætt tveimur öðrum stigahærri pörum.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, setti bæði mótið með því að taka upphafsstigin á móti Inga Darvis og afhenti bikarana í verðlaunaafhendingunni.
Hann sagði að mótið hefði verið „æði“ og tók fram að hann teldi sig hafa séð allt í íþróttum en að síðustu tveir kvennaleikirnir hefðu verið eitthvað alveg magnað. Framtíðin væri björt.
53 leikmenn frá 9 félögum öttu kappi í meistaraflokkunum í ár.
Myndirnar eru af sigurvegurum.

Meistaraflokkur kvenna: Sól, Guðbjörg Vala og Helena.

Meistaraflokkur karla: Ingi Darvis, Birgir, Benedikt Aron og Davíð.

Tvíliðaleikur kvenna: Guðbjörg Vala og Helena, Nevena og Eva (vantar á mynd), Marta og Þórunn, Aldís og Sól.

Tvíliðaleikur karla: Ingi Darvis og Benedikt Aron, Kristján og Þorbergur (vantar á mynd), Birgir og Gestur, Ellert og Óskar.
+
Tvenndarleikur: Ingi Darvis og Nevena (vantar á mynd), Gestur og Guðbjörg, Davíð og Aldís, Sól og Birgir.
Forsíðumynd: Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, afhendir Inga Darvis bikarinn.
Öll úrslit má finna á Tournament Software.


