Verkefni unglingalandsliðsins í sumar
Landsliðsval – Sumarið 2026 (texti frá Sindre Ateigen)
Þjálfarateymi BTÍ, skipað Ársæli og Sindre, hefur valið eftirfarandi unglingalandsliðsleikmenn fyrir alþjóðleg verkefni sumarsins:
NETU (Norðurlandamót unglinga, U15 & U19)
25.–28. júní
Cadet drengir: Lúkas André Ólason og Benedikt Darri Malmquist
Junior stúlkur: Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir, Marta Dögg Stefánsdóttir og Þórunn Erla Gunnarsdóttir
Æfingabúðir í Noregi
1.–8. júlí
Cadet drengir: Lúkas André Ólason
Junior stúlkur: Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Helena Árnadóttir
Junior drengir: Benedikt Aron Jóhannsson, Alexander Ivanov, Kristján Ágúst Ármann
*Ath. þetta er nýtt verkefni sem norskur borðtennis býður í. Gisting og morgunmatur verður leikmönnum að kostnaðarlausu en þeir greiða flug og annan mat þiggi þeir boðið.
EM (Evrópumót unglinga – liðakeppni)
10.–14. júlí
Junior drengir: Benedikt Aron Jóhannsson, Alexander Ivanov, Kristján Ágúst Ármann
Valferlið
Valið var unnið í sameiningu af þjálfarateyminu.
Undir venjulegum kringumstæðum væri val þjálfara borið lítillega undir landsliðsnefnd BTÍ, til að tryggja að ekkert hafi farið fram hjá teyminu. Vegna fjölskyldutengsla var nefndin þó ekki höfð með í ráðum að þessu sinni. Þess í stað var stjórn kynnt niðurstaða um fjölda liða og leikmanna og hún staðfesti það formlega.
Aðallandsliðsþjálfari stendur að fullu á bak við bæði ferlið og endanlegt val.
Rökstuðningur fyrir vali:
Cadet stúlkur
Eins og staðan er í dag á Ísland ekki leikmenn í þessum flokki sem eru tilbúnir til að keppa á alþjóðlegum vettvangi á vegum unglingalandsliðsins.
Cadet drengir
Lúkas André Ólason er sá leikmaður í flokknum sem hefur mestu getuna til að keppa á alþjóðlegu stigi. Benedikt Darri Malmquist kemur næstur á eftir honum.
Við teljum EM unglinga vera of krefjandi á þessu stigi, en NETU vera hentugri og þróunarlega réttari vettvang.
Junior stúlkur
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir er augljóst val miðað við sterkan árangur á alþjóðlegum mótum á tímabilinu, þar á meðal:
– 3. sæti á Safir International í Svíþjóð
– 1. sæti í liðakeppni á Ängby
– Fjölda sterkra sigra gegn erlendum leikmönnum
Helena Árnadóttir er einnig valin á grundvelli alþjóðlegs árangurs, og er sterkasti árangurinn 1. sæti á Ängby ásamt Guðbjörgu Völu.
Hins vegar þarf að horfa til mikilvægs atriðis:
Á junior-stigi alþjóðlega breytist keppnisfyrirkomulagið úr tveggja manna liðum í þriggja manna lið, og tvíliðaleikur fellur út.
Eins og staðan er í dag höfum við ekki þriðja leikmann sem getur staðið undir því að keppa á háu alþjóðlegu stigi eins og á EM unglinga. Í ljósi þess, og þess að þessar stelpur eru fyrsta árs juniorar, teljum við skynsamlegra að forgangsraða NETU, sem hentar þeirra stöðu betur.
Junior drengir
Þetta er eini flokkurinn þar sem við höfum nægjanlega breidd og styrk til að réttlæta þátttöku á EM unglinga.
Sérstaklega hafa Kristján Ágúst Ármann og Benedikt Aron Jóhannsson sýnt bæði árangur og metnað með daglegum æfingum og keppni í Svíþjóð. Þessi hópur hefur forsendur til að njóta góðs af þátttöku á evrópskum vettvangi.
Nauðsynleg stefnubreyting
Sem þjálfarar viljum við vera mjög skýrir:
Ef íslenskur borðtennis ætlar að keppa við Evrópu, þarf vinnulagið að þróast.
Við höfum séð í öðrum íþróttum að Ísland getur náð árangri á alþjóðlegum vettvangi. Það er engin ástæða fyrir því að borðtennis geti það ekki – en það krefst breytinga.
Við þurfum:
– Meiri sameiginlegar æfingar milli félaga
– Sterkari samvinnuhugsjón („við“)
– Minni áherslu á einstaklingsval og félagatengsl
Það krefst:
– Betri æfingagæða
– Meiri æfingamagns
– Sterkara samstarfs milli vettvanga
Markmiðið ætti ekki að vera að vera valinn. Markmiðið ætti að vera að verða betri leikmaður.
Því að í raun verður árangur ekki til á mótum – hann verður til í vinnunni á milli móta.
Við munum því boða til opins fundar á næstu landsliðssamveru í maí, þar sem við munum fara nánar yfir hvernig við teljum að íslenskur borðtennis geti orðið betri á næstu árum. Tímasetning fundarins verður auglýst nánar þegar nær dregur.
Fjármunir og forgangsröðun
Við verðum einnig að horfast í augu við eftirfarandi staðreynd:
Við erum samband með takmarkaða fjármuni.
Það eru uppi ýmsar skoðanir á því hvar eigi að setja meiri áherslu – hvort það eigi að styðja ákveðna hópa eða einstaklinga. Við skiljum það vel og í fullkomnum heimi myndum við vilja gera meira fyrir fleiri.
En miðað við fjárhagslegar takmarkanir er forgangsröðun óhjákvæmileg.
Ekki allir munu vera sammála öllum ákvörðunum – og það er heldur ekki markmiðið.
Markmiðið er að taka ákvarðanir út frá því sem við teljum vera best fyrir leikmennina og íslenskan borðtennis í heild.
Um bráðabirgðaáætlunina
Ég skil að sumir kunni að bregðast við því að upphaflegri bráðabirgðaáætlun var ekki fylgt að fullu.
En það er mikilvægt að undirstrika:
Hún var bráðabirgðaáætlun.
Í íþróttum breytast áætlanir stöðugt. Nýjar upplýsingar, framfarir og aðstæður kalla á aðlögun.
Að það hafi verið til áætlun fyrr breytir því ekki að þessar ákvarðanir hafi verið teknar út frá því sem við teljum vera best fyrir leikmennina og íslenskan borðtennis.
Að lokum viljum við nefna að eina ferð til viðbótar á eftir að kynna val frekari leikmanna í, en það er Mega Cup auk norskra æfinga 12.-16. júní 2026. Markmiðið þar er að fleiri leikmenn geti tekið þátt í verkefnum.
Forsíðumynd af Guðbjörgu Völu og Kristján Ágústi á EYOF 2025, mynd frá Jóhannesi Egilssyni.


