Úrslit úr páskamóti Garps 28. mars
Alls voru 67 keppendur frá 8 félögum skráðir til leiks á Garpsmótinu í Laugalandsskóla í Holtum laugardaginn 28. mars. Um helmingur keppenda voru heimamenn og var haft orð á því að þó þetta hefði aðeins verið annað mót félagsins hefði það farið fram með miklum ágætum.
Bílaverkstæðið á Rauðalæk, Rangárþingi ytra, gaf öllum keppendum páskaegg og fengu sigurvegarar flokka stærri egg.
Bæring Jón Breiðfjörð Guðmundsson og Sveinbjörn Ari Gunnarsson sáu um mótsstjórn og dómgæslu og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir aðstoðaði með skráningar og mótaforrit.
Keppni fór fram í níu flokkum og úrslit mótsins má sjá hér að neðan:
Verðlaunahafar:

Opinn flokkur karla
1.sæti Anton Óskar, Selfoss
2.sæti Rubén Illera Lopez, Selfoss
3.-4.sæti Sveinbjörn Ari Gunnarsson, Selfoss
3.-4.sæti Piotr Grzegorz Rajkiewicz, HK

Opinn flokkur kvenna
1.sæti Weronika Grzegorczyk, Garpur
2.sæti Guðný Lilja Pálmadóttir, Garpur
3.-4.sæti Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir, Garpur
3.-4.sæti Lea Mábil Andradóttir, Garpur

Undir 15 ára sveinar
1.sæti Sævar Hörður Sverrisson, Garpur
2.sæti Geir Thorberg Geirsson, Garpur
3.sæti Þorgeir Óli Eiríksson, Garpur
4.sæti Sindri Snær Steinarsson, Selfoss

Undir 13 ára piltar
1.sæti Andri Sigurjón Hrundarson, HK
2.sæti Jörundur Steinar Hansen, HK
3.-4.sæti Guðmundur Ólafur Bæringsson, Garpur
3.-4.sæti Esteban Gabriel Olguin Gunnarsson, Garpur

Undir 13 ára telpur
1.sæti Guðbjörg Stella Pálmadóttir, Garpur
2.sæti Guðrún Birna Sveinbjörnsdóttir, Selfoss

Undir 11 ára hnokkar
1.sæti Sindri Karl Heimisson, HK
2.sæti Hjörleifur Brynjólfsson, HK
3.-4.sæti Óðinn Hechmann Emilsson, HK
3.-4.sæti Björn Kári Valsson, HK

Undir 11 ára tátur
1.sæti Anna Karen Malmquist, Vísi
2.sæti Saga Katrín Sveinbjörnsdóttir, Selfoss
3.-4.sæti Kolbrún María Pierresdóttir, Garpur
3.-4.sæti Ingibjörg Halla Gestsdóttir, UMFG

Undir 9 ára strákar
1.sæti Agnar Bergmann Stefánsson, HK
2.sæti Sölvi Harðarson, HK
3.-4.sæti Kári Hjörvarsson, HK
3.-4.sæti Ísak Bergmann Stefánsson, HK

Undir 9 ára stelpur
1.sæti Ronja Rún Þórarinsdóttir, Garpur
2.sæti Dalía Nótt Hermannsdóttir, Garpur
3.sæti Hafdís Hanna Gestsdóttir, UMFG
Úrslit úr öllum leikjum á mótinu má sjá á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/F4A6028C-9ABD-4C10-8A9C-CD5D8AC849DD
Frétt og myndir frá Garpi.


