Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Weronika Grzegorczyk er borðtennismaður marsmánaðar

Í marsmánuði 2026 er það Weronika Grzegorczyk sem hlýtur nafnbótina borðtennismaður mánaðarins. Verkefnastjóri Borðtennissambandsins tók spjall við Weró á sunnudeginum á Íslandsmóti unglinga á Selfossi, þar sem hún vann til tvennra verðlauna.

Weronika tók fyrstu skrefin í borðtennis hjá Garpi á Laugalandi hjá Bæring um tíu ára aldur og eftir að hún byrjaði í FSU hefur hún æft af kappi með Selfossi – líkt og Anton Óskar sem var borðtennismaður desembermánaðar 2025. Nýverið varð Weronika fyrsti leikmaður Garps til að komast upp í 1. flokk kvenna en áður hafði Anton einmitt náð sama árangri í karlaflokki.

Weronika leggur áherslu á að hafa gaman af íþróttinni, passa vel upp á sig fyrir mót og nýtur þess að vera hluti af sterkum hópi þar sem allir styðja hvern annan.

Hvar, hvenær og hjá hverjum byrjaðirðu að æfa borðtennis?
„Ég byrjaði að æfa á Laugalandi hjá Bæring þegar ég var í fimmta bekk.“

Hvaða gúmmí notarðu?
„Ég nota Mantra í bakhönd og Glayzer í forhönd.“

Ertu með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki?
„Bara að borða vel og njóta mín í botn.“

Áttu einhvern uppáhalds borðtennissigur?
„Nei, mér finnst eiginlega allir sigrar bara mjög flottir hjá mér.“

Hér má þess geta að Weronika varð Íslandsmeistari unglinga í sínum aldursflokki bæði 2023 og 2025 og hefur einnig unnið tvíliðaleikstitla á sama móti með Lisbeth Viðju og Leu Mábil frá Garpi. 28. mars 2026 vann Weronika líka opinn flokk kvenna á fjölmennu Garpsmóti 2026 og viku fyrr sinn aldursflokk á HSK-mótinu í borðtennis.

Aðspurð um góða sögu úr borðtennisferð og erlendar fyrirmyndir í borðtennis dettur Weroniku ekkert sérstakt í hug, en hún horfir frekar til leikmanna úr íslenska borðtennissamfélaginu.

Er einhver leikmaður eða þjálfari sem hefur haft mikil áhrif á þig?
„Já, Rubén. Ég byrjaði að æfa meira og betur með honum.“

Af hverju er borðtennis besta íþróttin?
„Hún er bara fjölbreytt og geta allir spilað hana.“

Að lokum var spurt hvernig stemningin væri að vera mörg saman komin á Íslandsmóti unglinga, með krökkum frá Laugalandi þar sem Weronika byrjaði að æfa og Selfossi þar sem hún æfir núna?
„Það er mjög gaman að vera hérna mörg saman og fá stuðning frá hópnum.“

Þau sem vilja sjá meira af Weró eru hvött til að kíkja á myndbönd á síðu Borðtennissambandsins á TikTok. Lesendur eru jafnframt hvattir til að halda áfram að senda inn tilnefningar, til að styðja við góða umfjöllun árið 2026.

Aðrar fréttir