Stórmót HK 12. apríl
Stórmót HK 2026 fer fram í Íþróttahúsinu Snælandsskóla sunnudaginn 12. apríl kl. 10:00.
OPINN FLOKKUR KARLA OG KVENNA
Þátttökugjald 2.000 kr. Greiðist á staðnum eða með millifærslu á reikning HK 0536-26-005337 kt. 630981-0269
Skráningar skal senda á netfangið [email protected] fyrir kl. 18 föstudaginn 10. apríl
Dregið verður í íþróttahúsinu í Snælandsskóla kl. 18 föstudaginn 10. apríl
Leikið verður í riðlum 3-5 lotur og fara 2 efstu upp úr riðli. Eftir riðlakeppnina verður einfaldur útsláttur 4-7 lotur þar til úrslit fást. 4 efstu á styrkleikalista verða dregnir beint í töflu.
Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki
Mótið er hluti af Lokamóti BTÍ.
Leikið verður með STIGA 3ja stjörnu kúlum
Mótsstjórn skipa Óskar Agnarsson, Reynir Georgsson og Björn Gunnarsson
Yfirdómari er Bjarni Bjarnason


