Styrkleikalisti fyrir 1. apríl 2026 hefur verið birtur á vefnum
Styrkleikalisti fyrir 1. aprí 2026 (kallaður eftir viku 15) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar.
Frá því að síðasti listi var birtur hafa úrslit úr Íslandsmóti unglinga 28. febrúar – 1. mars, Íslandsmóti fatlaðra 7. mars, Íslandsmótunum 14. og 21.-22. mars, Héraðsmóti HSK 22. mars og Garpsmótinu 28. mars verið lesin inn í listann.
Í þessum mánuði bættust rúmlega 50 nýir leikmenn við á listanum. Freyr Leó Ásgeirsson, UMFG, var metinn inn á listann byggt á árangri í mánuðinum. Bjarni Daníelsson, Dímon, kom aftur inn á listann af óvirka listanum.
Það sem gerðist m.a. markvert við þessa uppfærslu var Heiðar Leó Sölvason, BH og Helena Árnadóttir, KR, unnu sig upp í meistaraflokk í fyrsta skipti. Anna Marczak, KR, Hergill Frosti Friðriksson, BH, Ibrahim Hossam Al-Masry, BR, Marta Stefánsdóttir, KR og Þórunn Erla Gunnarsdóttir, KR unnu sig upp í 1. flokk í fyrsta skipti.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildakeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu, [email protected].
Á forsíðunni má sjá Helenu Árnadóttur á Íslandsmótinu 2026.


