Borðtennismót Akurs verður 19. apríl
Borðtennismót Akurs 2026 fer fram í Íþróttahúsinu Glerárskóla sunnudaginn 19. apríl kl. 10:00.
Keppnisflokkar
10.00 2. flokkur karla og kvenna
11.30 1. flokkur karla og kvenna
12.30 Meistaraflokkur karla og kvenna
Lágmarksþátttaka í hverjum flokki eru 4 svo flokkurinn verði spilaður.
Þátttökugjald 1000 kr. í hvern flokk sem keppt er í (heimilt er að keppa í 2 flokkum). Þáttökugjald greiðist á staðnum eða með millifærslu á reikning Akurs 565-26-2385 kt. 411292-2669 (ef millifært skal senda staðfestingu á netfangið [email protected]).
Skráningar skal senda á netfangið [email protected] fyrir kl. 18 miðvikudaginn 15. apríl.
Dregið verður í íþróttahúsinu í Glerárskóla kl. 18 föstudaginn 17. apríl.
Leikið verður í riðlum 3-5 lotur og fara 2 efstu upp úr riðli. Eftir riðlakeppnina verður einfaldur útsláttur þar til úrslit fást.
Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hverjum flokki.
Leikið verður með STIGA 3ja stjörnu kúlum.
Mótsstjórn skipa Elvar Thorarensen og Helgi Þór Gunnarsson.
Yfirdómari er Helgi Þór Gunnarsson
Bréf um mótið: Akur Mót 19 apríl


