Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fjórir liðssigrar á fyrsta degi á Youth championships í Linz

Íslensku leikmennirnir hófu keppni á 25. Youth championships í Linz í Austurríki þann 2. apríl. Keppt var í forkeppni riðlum í liðakeppni og voru flest liðin félagslið en einnig nokkur landslið.

Liðakeppni drengja undir 19 ára (Q-riðill 9)

Ísland – USV Jena 2 (Þýskalandi) 1-3
Benedikt Aron vann leik Íslands.

Ísland – Hilleröd HGI (Danmörku) 0-3
Þeir Alexander og Benedikt Aron unnu tvær lotur.

Ísland – Ultimate spinjitsu masters (Sviss) 2-3
Benedikt vann annan einliðaleikinn og saman unnu þeir Alexander og Benedikt tvíliðaleikinn.

Liðið hafnaði í 4. sæti í riðlinum.

Liðakeppni stúlkna undir 17 ára (Q-riðill 4)

Ísland – Dobolyi Aladartable Tennis Sport Club Association (Rúmeníu) 0-3
Allir leikir töpuðust 1-3.

Ísland – TTK Eden (Austurríki) 3-1
Guðbjörg Vala vann báða einliðaleiki sína og þær Helena unnu tvíliðaleikinn.

Ísland – Sokol Hradec Králové 0-3 (Tékklandi) 0-3
Tvíliðaleikurinn tapaðist í oddalotu en aðrir leikir 0-3.

Liðið lauk keppni í 3. sæti í riðlinum af fjórum liðum.

Liðakeppni drengja undir 17 ára
Ísland 1 leikur í Q-riðli 1 og Ísland 2 í Q-riðli 7.

Ísland 1 – Team MAGA (Þýskalandi) 3-0
Kristján Ágúst og norski félagi hans Lasse Brekkebråten unnu hvor sinn einliðaleikinn og tvíliðaleikinn.

Ísland 1 – Vestegnen BTK (Danmörku) 1-3
Öllum leikjum lauk 3-2 en þeir Kristján og Lasse unnu tvíliðaleikinn.

Ísland 1 – Ask C.S.D. Kras (Ítalíu) 2-3
Kristján vann báða einliðaleikina sína en aðrir leikir töpuðust.

Ísland 1 lauk keppni í 3. sæti í riðlinum af fjórum liðum.

Ísland 2 – Raibe Kirchbichl (Austurríki) 0-3
Þeir Heiðar Leó og Viktor töpuðu leikjunum en unnu tvær lotur.

Ísland 2 – Team Nederland 1 (Hollandi) 0-3
Eins og í fyrsta leiknum unnu þeir Heiðar og Viktor tvær lotur.

Ísland 2 – Malta / Drzonków- (Möltu og Póllandi?) 3-2
Heiðar og Viktor unnu hvor sinn einliðaleik og tvíliðaleikinn saman.

Ísland 2 lauk keppni í 3. sæti í riðlinum af fjórum liðum.

Liðakeppni sveina undir 15 ára (Q-riðill 4)

Ísland – Tischtennis-Verband Innerschweitz (TTVI) 1 (Sviss) 0-3
Lúkas og norski liðsfélagi hans Jörgen Graveseth töpuðu báðum einliðaleikjunum 0-3 en tvíliðaleikurinn tapaðist í oddalotu.

Ísland – Team Nederland (Hollandi) 2-3
Lúkas vann báða einliðaleiki sína 3-0 en aðrir leikir töpuðust.

Ísland – Lamaparty (Þýskalandi) 3-0
Lúkas vann sinn einliðaleik 3-0, Jörgen vann 3-1 og tvíliðaleiknum lauk 3-0.

Liðið lauk keppni í 3. sæti í riðlinum af fjórum liðum.

Keppni heldur áfram í riðlum í liðakeppni 3. apríl, og hefur liðunum verið raðað í nýja riðla.

Öll úrslit má sjá hér: www.ttm.co.at

Forsíðumyndin er frá Sindre og sýnir salinn í Linz, þar sem munu vera 56 borðtennisborð.

Aðrar fréttir