Sveinaliðið fékk silfur og tvö drengjalið brons í liðakeppni
Leikið var til úrslita í liðakeppni drengja á 25. Youth championships í Linz í Austurríki á páskadag, 5. apríl. Stúlknaliðið lauk sömuleiðis keppni í „challenge“ riðlinum.
Sveinaliðið, undir 15 ára, varð í 2. sæti í sínum flokki. Drengjaliðið undir 19 ára og Ísland 1 í undir 17 ára flokki höfnuðu hvort um sig í 3. sæti í sínum flokki og fengu því bronsverðlaun. Liðið Ísland 2 í undir 17 ára flokki drengja varð í 6. sæti og stúlknaliðið (undir 17 ára) í 10. sæti í sínum flokki.
Keppni hélt áfram í einliðaleik, en síðustu leikirnir fara fram 6. apríl. Leikmenn sem enduðu í efri hluta riðils þann 4. apríl léku í „championship“ útslætti um sigur í flokknum en þeir sem luku keppni í neðri hluta riðils léku í „challenge“ útslætti, e.k. B-keppni.
Úrslit dagsins:
Undir 19 ára drengir:
Liðakeppni:
Undanúrslit: Ísland – Vestegnen BTK (Danmörku) 0-3
Leikur um 3. sæti: Ísland – Team Nederland 3 (Hollandi) 3-2
Í undanúrslitunum töpuðust tveir af leikjunum í oddalotu og einn fór 1-3. Í leiknum um 3. sæti vann Benedikt báða einliðaleiki sína, annan 18-16 í oddalotu. Alexander vann annan einliðaleikinn sinn. Liðið fékk því bronsið í flokknum.
Einliðaleikur:
Alexander Ivanov lagði belgískan leikmann 3-0 í 16 manna úrslitum í „challenge“ útslættinum .
Benedikt Aron Jóhannsson tapaði 0-3 fyrir þýskum leikmanni í 32 manna úrslitum í „championship“ útslættinum.
Undir 17 ára stúlkur:
Liðakeppni:
Ísland – Fortress Table Tennis (Luxembourg) 3-0
Ísland – TTC Elbe Dresden (Þýskalandi) 3-0
Þetta voru síðustu leikir stúlknanna í „challenge“ riðlinum og í fyrri leiknum unnu þær einliðaleikina 3-0 en tvíliðaleikinn 3-1. Í seinni leiknum vann Guðbjörg Vala sinn einliðaleik 3-2 en hinum leikjunum lauk 3-1.
Liðið lauk keppni í 2. sæti í „challenge“ riðlinum og má segja að þær hafi hafnað í 10. sæti í flokknum þar sem 8 lið komust í „championship“ útsláttinn.
Einliðaleikur:
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir lék ekki í einliðaleik, þar sem hún sat hjá í 1. umferð í „challenge“ útslættinum.
Helena Árnadóttir tapaði 0-3 fyrir hollenskri stúlku í 16 manna úrslitum í „championship“ útslætti.
Undir 17 ára drengir:
Liðakeppni:
Undanúrslit: Ísland 1 – NÖTTV (Austurríki) 2-3
Leikur um 3. sæti: Ísland 1 – Namiznoteniski klub Savinja 1 (Slóveníu) 3-1
Í undanúrslitunum vann Lasse báða einliðaleiki sína. Í leiknum um 3. sæti vann Lasse aftur báða einliðaleikina og Lasse og Kristján unnu tvíliðaleikinn. Liðið hreppti því í 3. sæti í flokknum.
Einliðaleikur:
Kristján Ágúst Ármann sigraði austurrískan leikmann 3-0 í 32 manna úrslitum í „challenge“ útslætti. Næst mætti hann leikmanni frá Lúxemborg og sigraði hann 3-2.
Liðakeppni:
5.-8. sæti: Ísland 2 – Team Maga (Þýskalandi) 3-1
Leikur um 5. sæti: Ísland 2 – Malta / Drzonków 2-3
Í leiknum um sæti 5.-8 vann Heiðar Leó báða einliðaleiki sína og Heiðar og Viktor unnu tvíliðaleikinn. Í leiknum um 5. sæti vann Heiðar annan einliðaleikinn sinn og Heiðar og Viktor unnu tvíliðaleikinn.
Liðið lauk því keppni í 6. sæti.
Einliðaleikur:
Heiðar Leó Sölvason tapaði 0-3 gegn þýskum leikmanni í 32 manna úrslitum í „challenge“ útslættinum.
Viktor Daníel Pulgar tapaði 2-3 fyrir dreng frá Austurríki í 16 manna úrslitum í „challenge“ útslættinum.
Undir 15 ára sveinar:
Liðakeppni:
Undanúrslit: Ísland – CPH-Hvidovre / Virum BTK (Danmörku) 3-1
Úrslit: Ísland – Virum BTK 1 (Danmörku) 2-3
Í undanúrslitum vann Lúkas báða einliðaleikina sína og Jörgen annan sinn. Í úrslitaleiknum unnu þeir hvort sinn einliðaleik.
Liðið lauk því keppni í 2. sæti.
Einliðaleikur:
Lúkas André Ólason lék í „championship“ útsláttarkeppni við enskan leikmann en tapaði 0-3. Þessi leikur var í 64 manna útslætti.
Keppendur Íslands halda áfram keppni í einliðaleik þann 6. apríl, ýmist í huggunarkeppni („consolation“) eða í „challenge“ keppni.
Hinir norsku félagar íslensku leikmannanna náðu góðum árangri. Jörgen Gravseth féll úr leik í 16 manna úrslitum í „championship“ útsláttarkeppninni í flokki sveina undir 15 ára. Lasse Brekkebråten leikur í 16 manna „championship“ úrslitum í flokki drenga undir 17 ára þann 6. apríl.
Öll úrslit á mótinu má sjá hér: www.ttm.co.at
Á forsíðumyndinni, sem Gunnar Skúlason tók, má sjá Kristján Ágúst Ármann og norska meðspilara hans, Lasse Brekkebråten en þeir skipa lið Íslands 1 í undir 17 ára drengjaflokki.


