Ársþing BTÍ 2026 verður haldið 10. maí
Borðtennisþing Borðtennissambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, B-sal, sunnudaginn 10. maí 2025 kl. 13:00, sbr. 5. gr. laga sambandsins.
Kjörbréf má finna hér og eru þau send til aðildarfélaga í dag samhliða birtingu þessarar fréttar.
Fjöldi þingfulltrúa er eftirfarandi:

Á ársþingi BTÍ þann 10. maí nk. eiga 42 félög rétt á að senda samtals 104 fulltrúa, sem hafa atkvæðisrétt. Auk þeirra eiga ýmsir aðrir rétt til setu á þinginu með málfrelsi og tillögurétt, t.d. stjórn og varastjórn BTÍ, sbr. 6. gr. laga BTÍ.
Frestur til að skila inn breytingatillögum á lögum og reglugerðum er 21 dögum fyrir þingið eða í síðasta lagi 19. apríl. Breytingartillögur skulu sendar á [email protected].
Ekki verður tekið við breytingatillögum eftir þann tíma. BTÍ mun senda breytingartillögur út til kynningar tveimur vikum fyrir þingið eða í síðasta lagi 26. apríl nk.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi (birt með fyrirvara um breytingar):
- Þingsetning.
- Kjör fundarstjóra og fundarritara.
- Staðfesta lögmæti fundarins.
- Kosning kjörbréfanefndar.
- Fara yfir fundargerð síðasta þings.
- Afhending viðurkenninga.
- Ávörp gesta.
- Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
- Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
- Reikningar bornir undir atkvæði.
- Fjárhagsáætlun.
- Lagabreytingar.
- Umræður og afgreiðsla á tillögum sem þinginu hafa borist.
- Kosning stjórnar og varamanna.
- Kosning skoðunarmanna reikninga.
- Val fulltrúa á íþróttaþing.
- Önnur mál.
- Ræða formanns.
- Þingslit.
Fyrir hönd stjórnar Borðtennissambands Íslands
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir,
formaður BTÍ


