Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Breytingartillögur og uppfærð kjörbréf fyrir ársþing BTÍ 10. maí

Eins og áður greinir verður ársþing BTÍ í B-sal íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum kl. 13 sunnudaginn 10. maí nk. Sjá dagskrá ásamt upplýsingum um fjölda þingfulltrúa í frétt frá 10.4.2026.

Kjörbréf er aðgengilegt í viðhengi og er mælt með því að fulltrúar félaga komi með slík með sér en annars verða óútfyllt kjörbréf einnig aðgengileg á staðnum.

Kjörbréf 2026: Kjörbréf form 2026

Tillögur til lagabreytinga

Stjórn bárust lagabreytingartillögur frá einum borðtennismanni/fulltrúa ÍSÍ, sem ræddar verða á þinginu, auk þess sem stjórn leggur fram tvær tillögur. Þá barst stjórn erindi um túlkun laga BTÍ um fjölda þingfulltrúa frá lögfræðingi ÍSÍ, sem tekið hefur verið tillit til með þökkum:

Kári Mímisson:

2. gr. Aðilar að Borðtennissambandi Íslands
Borðtennissamband Íslands er samband íþróttafélaga sem aðild hafa að héraðssamböndum og íþróttabandalögum. Eru öll félög innan ÍSÍ sem iðka, æfa og keppa í borðtennis, aðilar að BTÍ.

Verður

2. gr. Aðilar að Borðtennissambandi Íslands
Borðtennissamband Íslands er samband íþróttafélaga sem aðild hafa að íþróttahéraði. Eru öll félög innan ÍSÍ sem iðka, æfa og keppa í borðtennis, aðilar að BTÍ.

Rök: Íþróttahérað er samheiti yfir héraðssambönd, íþróttabandalög og ungmennasambönd, ungmennasambönd telja þó almennt sem héraðssambönd og því er hér aðeins um orðalagsbreytingu sem hefur nú þegar átt sér stað í lögum ÍSÍ.

5. gr. Borðtennnisþing
Borðtennisþingið fer með æðsta vald í málefnum BTÍ. Fer réttkjörin stjórn BTÍ með vald sambandsins á milli þinga. Þingið sitja fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda BTÍ, sbr. 2. gr. Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags fer eftir tölu virkra iðkenda í borðtennis og skal miða við fjölda virkra iðkenda á birtum styrkleikalista BTÍ næstliðin þrjú almanaksár fyrir þing. Fyrir allt að 25 koma 2 fulltrúar og síðan 1 fyrir hverja 50 eða brot úr 50 upp í allt að 50 og þá 1 fulltrúi að auki fyrir hverja 200 iðkendur og þá 1 fulltrúa fyrir hverja 100 eða brot úr 100 iðkendur umfram 200 iðkendur. Stjórn hvers héraðssambands eða íþróttabandalags sem hefur skilað inn starfsskýrslum til ÍSÍ með borðtennisiðkendur hefur rétt á einum fulltrúa enda þótt iðkendafjöldi nái ekki 25.

Verður

5. gr. Borðtennnisþing
Borðtennisþingið fer með æðsta vald í málefnum BTÍ. Fer réttkjörin stjórn BTÍ með vald sambandsins á milli þinga. Þingið sitja fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda BTÍ, sbr. 2. gr. Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags fer eftir tölu virkra iðkenda í borðtennis og skal miða við fjölda virkra iðkenda á birtum styrkleikalista BTÍ næstliðin þrjú almanaksár fyrir þing. Fyrir allt að 25 koma 2 fulltrúar og síðan 1 fyrir hverja 50 eða brot úr 50 upp í allt að 50 og þá 1 fulltrúi að auki fyrir hverja 200 iðkendur og þá 1 fulltrúa fyrir hverja 100 eða brot úr 100 iðkendur umfram 200 iðkendur. Stjórn hvers iþróttahéraðs sem hefur skilað inn starfsskýrslum til ÍSÍ með borðtennisiðkendur hefur rétt á einum fulltrúa enda þótt iðkendafjöldi nái ekki 25.

Rök: Þau sömu og áður.

Hér er vert að benda á skv. frétt er ekki verið að veita íþróttabandalögum kjörbréf né héraðssamböndum.

6. gr. Um fulltrúa aðildarfélaga á borðtennisþingi
Þegar langt og dýrt er að sækja þingið, þá má heimila að fulltrúi fari með fleiri en 1 atkvæði, en aðeins með atkvæði þess aðila- sérráðs, héraðsambands (félags) eða íþróttabandalags sem hann er fulltrúi fyrir.

Verður

Þegar langt og dýrt er að sækja þingið, þá má heimila að fulltrúi fari með fleiri en 1 atkvæði, en aðeins með atkvæði þess félags eða íþróttahéraðs sem hann er fulltrúi fyrir.

Rök: Þau sömu og áður.

**Til viðbótar verður undir liðnum „önnur mál“ tekin upp tillaga Kára um að stofna stýrihóp um félagaskráningu, sem færi yfir skráningu leikmanna á mót sem ekki hafa borðtennis á stefnuskrá sinni, sem og hvort eðlilegra sé að þingfulltrúar félaga byggi á skráningu iðkenda í skilakerfi, frekar en keppendum (svo sem almennt tíðkast innan íþróttahreyfingarinnar).

Stjórn BTÍ:

5. gr. Borðtennnisþing
Borðtennisþingið fer með æðsta vald í málefnum BTÍ. Fer réttkjörin stjórn BTÍ með vald sambandsins á milli þinga. Þingið sitja fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda BTÍ, sbr. 2. gr. Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags fer eftir tölu virkra iðkenda í borðtennis og skal miða við fjölda virkra iðkenda á birtum styrkleikalista BTÍ næstliðin þrjú almanaksár fyrir þing. Fyrir allt að 25 koma 2 fulltrúar og síðan 1 fyrir hverja 50 eða brot úr 50 upp í allt að 50 og þá 1 fulltrúi að auki fyrir hverja 200 iðkendur og þá 1 fulltrúa fyrir hverja 100 eða brot úr 100 iðkendur umfram 200 iðkendur. Stjórn hvers héraðssambands eða íþróttabandalags sem hefur skilað inn starfsskýrslum til ÍSÍ með borðtennisiðkendur hefur rétt á einum fulltrúa enda þótt iðkendafjöldi nái ekki 25.

Verður

5. gr. Borðtennnisþing
Borðtennisþingið fer með æðsta vald í málefnum BTÍ. Fer réttkjörin stjórn BTÍ með vald sambandsins á milli þinga. Þingið sitja fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda BTÍ, sbr. 2. gr. Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags fer eftir tölu virkra iðkenda í borðtennis og skal miða við fjölda virkra iðkenda á birtum styrkleikalista BTÍ næstliðin þrjú almanaksár fyrir þing.

Fyrir 1-10 iðkendur fæst 1 fulltrúi
Fyrir 11-25 iðkendur fást 2 fulltrúar
Fyrir 26-49 iðkendur fást 3 fulltrúar
Fyrir 50-74 iðkendur fást 4 fulltrúar
Fyrir 75-149 iðkendur fást 5 fulltrúar
Fyrir 150-249 iðkendur fást 6 fulltrúar
Fyrir 250-399 iðkendur fást 7 fulltrúar
Fyrir 400 iðkendur eða fleiri fást 8 fulltrúar

Stjórn hvers íþróttahéraðs, sem hefur viðkomandi íþróttagrein innan sinna vébanda, skal að auki eiga rétt á a.m.k. einum áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á borðtennisþingi til viðbótar við fulltrúa félaga innan viðkomandi íþróttahéraðs. Allir fulltrúar á ársþingi skulu vera lögráða.

Rök:
1. Ekki hefur verið hefð fyrir því að aðrir en aðildarfélög eigi almenna fulltrúa á borðtennisþingi, enda er keppt undir merkjum þeirra og iðkendur þannig taldir. Þykir því eðlilegt að taka út umfjöllun um héraðssambönd og íþróttabandalög varðandi almenna þingfulltrúa (en sjá þó 4. lið hér að neðan).
2. Í rúmt ár hefur stjórn BTÍ haft það að markmiði að allra minnstu félögin, þ.e. þau sem hafa aðeins 1-10 iðkendur, skuli fá einn fulltrúa í stað tveggja, frá og með borðtennisþingi 2027. Er því lögð fram breytingartillaga um það.
3. Þá vildi stjórn setja yfirlit þingfulltrúa fram á punktaformi til að auka skýrleika, en fyrra orðalag hefur valdið þónokkrum ruglingi.
4. Loks fer stjórn eftir ábendingu úr tölvupósti ÍSÍ dags. 3. mars 2026 um að samkvæmt uppfærðri b-lið greinar 49.3 í lögum ÍSÍ skuli viðkomandi íþróttahéruð eiga áheyrnarfulltrúa auk þess sem nú sé áskilið að fulltrúar á ársþingi séu lögráða. Er tillaga um 3. málsgrein ákvæðisins þannig í samræmi við framangreindan b-lið laga ÍSÍ.

Ný 14. gr.

14. gr. Viðurlög
Stjórn BTÍ skal setja reglugerð um viðurlög við brotum á lögum og reglum sambandsins, svo og nánari ákvæði um beitingu þeirra.

Rök: Með tölvupósti ÍSÍ dags. 3. mars 2026 var bent á að áskilnaður væri nú gerður af hálfu ÍSÍ um að í lögum sérsambanda skuli vera ákvæði um „viðurlög við brotum á lögum og reglum sambandsins“, sbr. f-lið greinar 49.3 í lögum ÍSÍ. Eftir atvikum mætti kveða á um að slíkt mætti útfæra nánar í reglugerð og leggur stjórn slíkt til, til að tryggja tækifæri til samráðs. Er lagt til að reglugerðin sé kynnt eigi síðar en á næsta ársþingi, til að tryggja tækifæri til samráðs við sambandsaðila á keppnistímabilinu 2026-2027.

Lögfræðingur ÍSÍ:
„Í 2. gr. laga sambandsins segir að BTÍ sé samband íþróttafélaga sem aðild hafa að héraðssamböndum og íþróttabandalögum. Eru öll félög innan ÍSÍ sem iðka, æfa og keppa í borðtennis, aðilar að BTÍ.

Þessa grein verður að túlka með hliðsjón af gr. 3.2. í lögum ÍSÍ þar sem segir: „Sérsambönd eru mynduð um ákveðnar íþróttagreinar og eru landsamtök allra íþróttahéraða, sbr. kafla 6, sem hafa iðkun þeirrar íþróttagreinar á stefnuskrá sinni.“

Aðildarfélög að BTÍ eru því aðeins þau félög sem hafa iðkun borðtennis á stefnuskrá sinni.

Í 5. gr. laga BTÍ segir að þing sambandsins sitji fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda BTÍ, sbr. 2. gr. laganna. Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags fer svo eftir tölu virkra iðkenda í borðtennis og skal miða við fjölda virkra iðkenda á birtum styrkleikalista BTÍ næstliðin þrjú almanaksár fyrir þing.

Rétt samkvæmt lögunum til þingfulltrúa hafa sem sagt aðeins þau félög þar sem borðtennis er iðkaður og iðkendur eru á styrkleikalista, ekki er nóg að keppandi skrái sig til keppni undir merkjum félagsins, borðtennis verður að vera iðkaður í félaginu.“

Einnig kom fram ábending um að félag sem ekki er aðili að íþróttahreyfingunni ætti tvo fulltrúa (Örninn) en slíkt væri ekki rétt m.t.t. aðildarskorts.

Athugasemdir stjórnar: Stjórn þakkar fyrir vandaðar ábendingar sem samræmast vilja hennar. Án þess að fara í óþarfa málalengingar um forsöguna var árið 2025 farið eftir athugasemdum þáverandi stjórnarmanns í ÍSÍ um að lög BTÍ ættu að leiða til þess að félög sem hefðu átt leikmenn á móti ættu rétt til þingfulltrúa, óháð því hvort borðtennisæfingar færu þar fram.

Túlkun lögfræðings ÍSÍ er í samræmi við þá túlkun sem átti sér stað til og með ársins 2024 og tekur núverandi stjórn ábendingunum fagnandi – en þær eru taldar leiða til eðlilegri og heppilegri stöðu.

Er uppfærð fulltrúatafla því svo og er tölvupóstur sendur á félögin sama dag og frétt þessi er birt:

Ársþing, uppfærðir fulltrúar

Aðrar fréttir