Leikmenn á lokamóti BTÍ 8. maí
Keppendalistinn fyrir lokamót BTÍ liggur fyrir. Boð á mótið fengu 8 efstu leikmenn í karla- og kvennaflokki, og var farið niður listann ef leikmenn sem fengu boð sáu sér ekki fært að taka þátt. Í frétt frá 25.4. má sjá lokastöðu keppenda í mótaröðinni.
Lista yfir leikmenn og andstæðinga þeirra má sjá á vef Tournament Software, https://www.tournamentsoftware.com/tournament/06DCD90F-701F-462E-AC73-7BEF9CFEE526. Ef einhver af þeim sem höfðu tilkynnt þátttöku afboða sig fram að móti, mun næsti maður á listanum fá boð og þá færast þeir sem eru ofar á listanum upp um sæti. Því kann þessi röðun á leiki sem hefur verið birt að breytast fram að því að keppni hefst.
Mótið fer fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi og hefst keppni kl. 17.
Flottir vinningar verða í boði fyrir keppendur, eins og undanfarin tvö ár.
Á forsíðumyndinni má sjá keppendur á lokamótinu í maí 2025.


